13.12.1951
Efri deild: 42. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 983 í B-deild Alþingistíðinda. (1504)
83. mál, Iðnaðarbanki Íslands hf
Frsm. meiri hl. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. Ég held, að það hafi verið óvinsælt, að ég hef hert á eftir málinu, en ég hef gert það til þess að fengist úr því skorið, hvort það hefur fylgi eða ekki. En það er nú orðið nokkuð áliðið, og ég býst við, að margir þdm. séu fjarverandi, þar á meðal sá þdm., sem forseti minntist á, og vildi ég því mælast til þess við forseta, að atkvgr. verði frestað til næsta fundar.