19.12.1951
Efri deild: 50. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 984 í B-deild Alþingistíðinda. (1511)

83. mál, Iðnaðarbanki Íslands hf

Steingrímur Aðalsteinsson:

Herra forseti. Við 2. umr. frv. þessa flutti ég till. um það, að hlutafé bankans yrði hækkað frá því, sem áætlað var í frv., að í stað 61/2 millj. kr. verði hlutaféð 11 millj. kr. Hlutafénu verði safnað með því móti, að ríkissjóður leggi fram 5 millj., Félag íslenzkra iðnrekenda og Landssamband iðnaðarmanna 5 millj. kr., en 1 millj. kr. verði aflað með hlutafjársöfnun. Ég færði rök að því við fyrri umr., að með auknu hlutafé fengi bankinn meira traust hjá almenningi en ella, þannig að möguleikar bankans til starfsemi sinnar verða meiri. Brtt. þessi fékkst ekki samþ., en ég leyfi mér nú enn að bera fram brtt. við frv. um þetta, þótt hún gangi ekki eins langt og fyrri brtt. mín. Þessi brtt. mín er sem hin fyrri við 3. gr. frv. og er þess efnis, að hlutafé bankans verði 9 millj.; ríkissjóður leggi fram 4 millj., Landssamband iðnaðarmanna og Félag íslenzkra iðnrekenda leggi fram 2 millj. kr. hvort um sig, en 1 millj. kr. verði aflað innanlands með opinberu útboði.

Ég tel þess ekki þurfa, að ég fjölyrði um þessa till., en með henni er aðeins skemmra gengið en í fyrri till. minni.

Sömuleiðis er 2. brtt. við 11. gr. frv., sem fjallar um iðnlánasjóð. Þar sem komið hafa fram till. frá ýmsum þm., sem sýna, að þeir kjósa heldur að efla iðnlánasjóð en að stofna nýjan banka, þá vil ég freista þess að koma til móts við þær till., sem varða eflingu þess sjóðs. Brtt. mín er efnislega á þá leið, að á eftir 11. gr. frv. komi ný gr., svo hljóðandi:

„Árin 1952–1961, að báðum meðtöldum, leggur ríkissjóður fram til iðnlánasjóðs 700000 kr. árlega, auk þess framlags, sem ákveðið er í lögum nr. 67 17. júlí 1946, um iðnlánasjóð.“

Það eru ákvæði í þessum lögum um iðnlánasjóð, að til hans skuli varið úr ríkissjóði 300 þús. kr. Með samþykkt þessarar till. yrði sú upphæð 1 millj. kr. á ári. Þó að svo færi, að hlutafé þessa banka verði ekki hærra en gert er ráð fyrir í frv., þá mundi þetta verða styrkur fyrir iðnaðinn, að iðnlánasjóði sé veitt meira bolmagn, sem hann þarf að hafa í þessum efnum.

Ég vil svo leyfa mér að afhenda hæstv. forsetu þessar tvær skriflegu brtt.