19.12.1951
Efri deild: 50. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 987 í B-deild Alþingistíðinda. (1515)
83. mál, Iðnaðarbanki Íslands hf
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég hef áður sagt mína skoðun á málinu, og skal ég því ekki fara frekar út í það, allra sízt þar sem hæstv. dómsmrh. er ekki við. Ég vildi aðeins segja það, að ég legg fram skriflega brtt. Hún er lítilfjörleg og er engin efnisbreyt. Hún er varatill. og kemur ekki til greina, ef brtt. hv. þm. Seyðf. á þskj. 363 verður samþ. Í þessari brtt. legg ég til, að fyrirsögn frv. verði breytt og hljóði svo: „Frumvarp til laga um Iðnbanka Íslands h/f.“