19.12.1951
Efri deild: 50. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 991 í B-deild Alþingistíðinda. (1521)
83. mál, Iðnaðarbanki Íslands hf
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Þannig stendur á, að sérstök n. starfar á vegum ríkisstj. við það að endurskoða bankalöggjöfina í heild. Það er ekki enn vitað mikið um árangur þess starfs, en mér hefði þó ekki þótt óeðlilegt, að frv. eins og þetta yrði afgr. með rökstuddri dagskrá vegna þessarar endurskoðunar. En það er þó ekki þetta, sem er efst á baugi í málinn, heldur hitt, hvort stofna skuli sérstakan iðnaðarbanka eða efla iðnlánasjóð. Ég hef hlýtt á rök beggja málstaðanna, en hef ekki getað gert það fyllilega upp við mig, hvora leiðina sé réttara að fara. Mér hefur verið það nokkur ráðgáta, að slegið skuli vera hendinni móti milljónaframlagi eins og 11/2 millj. frá S.Í.S. Það voru líka felldar till. frá hv. 4. þm. Reykv. um, að framlag ríkisins yrði 6 millj. í stað 4 millj. Þegar þetta gerðist voru líkur til, að þingi lyki fyrir jól, og mundu brtt. þá eðlilega hafa eytt málinn. Nú er vitað, að þingið stendur fram í janúar, og er þá tækifæri til að nota þessa till. og auka framlag ríkisins eins og þar segir. Ég vil fá að vita, hvaða háski iðnaðinum stafar af því, að þessar till. verði samþ. Þetta mál þarf ekki að leysa fyrir 1. jan. Ég get því ekki séð, að skaði sé að till. um aukin framlög. — Ég vildi enn fremur fá vitneskju um það, hvort kostnaður við útlán og stjórn iðnlánasjóðs hafi ekki numið nema 2500 kr. á ári. Ef það er rétt, ber á það að lita, að gert er ráð fyrir, að kostnaður við iðnaðarbanka yrði 250–300 þús. kr. Það virðist því vera, að stjórn iðnaðarbanka yrði tífalt dýrari en iðnlánasjóðs. Ef til þess kæmi, að sú leið yrði farin, yrði að gera mönnum ljósan þann kostnað, sem af henni mundi leiða. En skiptir það öllu máli, hvort fé til iðnaðarins er fengið Frá iðnaðarbanka eða iðnlánasjóði? Það, sem ég vildi spyrja um, er þetta: Er það rétt, að iðnlánasjóður kosti 2500 kr., en baukinn mundi kosta 250–300 þús. kr.? Hvers vegna er ekki tekið við framboðnum framlögum til bankans? Hvað eiga að vera margir bankastjórar við þennan bauka. ef stofnaður verður? Eiga þeir að verða þrír eins og við Landsbankann og Útvegsbankann? Eða á að notast við einn eins og í Búnaðarbankanum? Og eitt enn. Ég hef ekki gáð að því, hvort ákvæði séu um það, að iðulánasjóður skuli aðeins veita stofnlán, eða hvort hann sé svo stór, að hann geti einnig veitt rekstrarlán. Ég játa, að till. hv. þm. Seyðf. um að efla eingöngu iðnlánasjóð er ekki aðgengileg eins og nú standa sakir, ef hlutverk hans á eingöngu að vera að veita stofnlán til iðnaðarins. Það virðist ekki vera rík þörf á því, eins og nú standa sakir, að fá ný lán til þess að stofna iðnfyrirtæki, þegar iðnaðurinn er í slíkum heljargreipum eins og hann er nú og með því að fjöldi af starfandi iðnfyrirtækjum er kominn á vonarvöl og ekki starfhæfur. En sé þáð rétt, að iðnlánasjóður hafi heimild til þess að veita lán til að reka iðnfyrirtæki, þá sýnist mér ekki með öllu óaðgengilegt að samþ. till., sem gengur lengst í því að efla iðnlánasjóð. sem gæti þá lánað allt það fé, sem hann ætti kost á, sem rekstrarlán til iðnaðarins. Og það eru rekstrarlánin, sem iðnaðinn vantar fyrst og fremst.
Ég er sannfærður um, að hv. þm. Barð. og hv. þm. Vestm. vilja vel leggja það á sig að gera þessu máli sem gleggst skil og sýna fram á, í hverju sá gróði er fólginn að taka ekki því framlagi til þessarar stofnunar frá Sambandi íslenzkra samvinnufélaga, sem fram er boðið, og hvers vegna nauðsynlegt er að hundraðfalda kostnaðinn vegna þessarar lánsstofnunar, og gefa upplýsingar um annað það, sem ég hef spurt hér um viðkomandi þessu máli.