14.12.1951
Efri deild: 44. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 998 í B-deild Alþingistíðinda. (1543)
145. mál, vegalög
Páll Zóphóníasson:
Mér þykir það hörð meðferð að neita mönnum um að koma með brtt. við frv. með því að setja fund látlaust, afgr. málið til 2. umr. og útiloka helzt umr. og setja þá annan fund, þannig að það er útilokað fyrir mig að koma með brtt. Þetta er einræði, að ætla sér á þennan hátt að belta menn ofríki og meina þeim að koma með brtt.