14.12.1951
Efri deild: 44. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 999 í B-deild Alþingistíðinda. (1545)

145. mál, vegalög

Gísli Jónsson:

Það er bara að gefnu tilefni, að ég sé ástæðu til að mótmæla, að hæstv. forseti sé víttur fyrir einræði. Ég veit ekki til annars en að hann hafi sýnt dæmalausa þolinmæði í því að koma hér fram réttlæti í sambandi við fundarstörf og vil ekki taka undir það, sem hér hefur verið talað um einræði hans.