18.12.1951
Efri deild: 47. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1007 í B-deild Alþingistíðinda. (1559)
145. mál, vegalög
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég vildi spyrja hæstv. forseta, hvort hann geti ekki leiðrétt prentvillu, sem orðið hefur. Það er ekki annað en prentvilla, þegar kaupstaðurinn er kallaður Ólafsfjörður. Hitt sætti ég mig við, að nefndin leggist móti till. mínum, en vona, að fari svo með f-liðinn, að hann verði felldur, þá veiti fjvn. fé til hans á fjárlögum.