15.11.1951
Efri deild: 29. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í B-deild Alþingistíðinda. (158)

41. mál, Landsbanki Íslands

Brynjólfur Bjarnason:

Herra forseti. Ég var ekki viðstaddur þegar þetta mál var samþ. í fjhn. og vissi ekki fyrr en nú, að það væri komið til 2. umr. Hér er um að ræða staðfestingu á brbl., og þar sem mér finnst með öllu óviðunandi, að með brbl. séu sett ákvæði sem þessi, þá mun ég greiða atkv. gegn frv., án þess að það sé út af fyrir sig vegna efnis þeirra. Hér eru freklega brotnar venjur um að bera stórmál undir Alþingi, og sérstaklega þar sem ekki var nauðsynlegt að setja lögin milli þinga. Það var jafnmikil nauðsyn til þessarar breytingar á síðasta þingi eins og eftir að því var slitið.