04.12.1951
Neðri deild: 36. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1028 í B-deild Alþingistíðinda. (1659)
37. mál, heimilishjálp í viðlögum
Frsm. (Kristín Sigurðardóttir):
Herra forseti. Heilbr.- og félmn. hefur haft málið til athugunar. Hún leggur til, að frv. verði samþ. með tveimur smábreyt., sem eru á þskj. 260. Þessar breyt. breyta frv. eiginlega ekki neitt. Fyrri brtt., við 1. gr. frv., er um, að síðasta setningin falli burt, orðin „sem kunna að setja heimili í hættu“. Mér finnst, að allt, sem þarf að taka fram, komi fram í gr., og setningin er því til óprýði. — Seinni breyt. er við 7. gr., um að 2. málsgr. umorðist þannig: „Reikningar skulu árlega sendir félmrn., er þeir hafa verið endurskoðaðir. Ráðuneytið ákveður endurgreiðslu ríkissjóðs á hluta af rekstrarhalla sveitarfélaganna vegna heimilishjálpar. Nægi ekki framlag ríkissjóðs samkvæmt fyrirmælum þessara l. til að greiða að fullu 1/3 hluta af sameiginlegum rekstrarhalla sveitarfélaganna vegna þessarar starfsemi, ber að endurgreiða sveitarfélögunum hallann hlutfallslega miðað við framlög þeirra.“ N. fannst það að taka fram, að rekstrarhalla sveitarfélaganna vegna þessa starfs ætti að greiða. ekki nógu skýrt í frv.
Frv. þetta er komið frá Ed., og er allt tekið fram, sem þarf að taka fram, í grg. með því. Ég vil svo að lokum óska þess fyrir hönd n., að hv. d. sjái sér fært að samþ. þetta frv.