07.01.1952
Efri deild: 55. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1030 í B-deild Alþingistíðinda. (1676)

37. mál, heimilishjálp í viðlögum

Rannveig Þorsteinsdóttir:

Herra forseti. Ég vil aðeins sem flm. gera grein fyrir minni afstöðu. Eins og mönnum er kunnugt, var málið borið fram í þeirri mynd, sem það mundi verða í, ef brtt. hæstv. dómsmrh. verður samþ. Hins vegar kom þessi breyt. inn í sem varúðarráðstöfun vegna kostnaðar. Form. fjvn. vildi þá stilla kostnaðinum í hóf, og var fallizt á það. Nú þykir mér eðlilegt, þar sem hæstv. dómsmrh. hefur svo mörgu að sinna, að hann hafi ekki tekið eftir þessu, þegar það kom frá n. á sínum tíma, og ef hann telur, að málið sé ekki í hættu, þó að það þurfi að fara í gegnum eina umr. í Nd., af því að till. hans kemur svo seint fram, mun ég fallast á að samþ. till., enda er hún í samræmi við óskir mínar í byrjun. Ég lít þá svo á, að þessi brtt. ráðh. komi af því, að hann hafi ekki athugað að koma með hana þá, og þar sem ekki er eftir nema ein umr. í Nd. og málið sé því ekki í hættu, þó að þessi brtt. sé samþ., — í því trausti mun ég greiða þessari till. atkvæði.