11.01.1952
Neðri deild: 56. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1034 í B-deild Alþingistíðinda. (1712)
87. mál, jarðræktarlög
Ásgeir Bjarnason:
Herra forseti. Ég vildi aðeins líta á þskj. áður. Þetta frv. hefur tekið dálitlum breytingum í Ed. Upphaflega var íkveðið í frv., að teiknistofa landbúnaðarins gerði teikningar og samþ. fyrir sitt leyti byggingu geymsluhúsa garðávaxta, sem væru styrkhæf samkv. jarðræktarlögunum. Slíkt mun þó ekki almennt vera um þær byggingar, sem styrkur er veittur til samkv. lögum þessum, og var frv. breytt í Ed. til samræmis við það, og hygg ég, að landbn. Nd. sætti sig við afgreiðslu frv. á þennan hátt.