26.11.1951
Efri deild: 34. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1041 í B-deild Alþingistíðinda. (1720)
121. mál, ráðstöfun erfðafjárskatts og erfðafjár ríkisjóðs til vinnuheimila
Rannveig Þorsteinsdóttir:
Herra forseti. Út af ummælum, sem hér féllu við 1. umr. málsins, um það, að heppilegt mundi vera að breyta í 1. gr. frv. ártalinu 1952 í 1953, vil ég geta þess, að heilbr.- og félmn. mun hafa þetta atriði til athugunar til 3. umr. En það mætti líklegt telja, að slík breyt. mundi verða mjög mikil trygging fyrir fljótum og örugglegum framgangi málsins, ef gerð yrði, og mun heilbr.- og félmn. hafa til athugunar til 3. umr. að bera fram brtt. í þessa átt.