04.01.1952
Efri deild: 54. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1050 í B-deild Alþingistíðinda. (1751)

84. mál, happdrætti íþrótta- og ungmennafélaga

Frsm. (Rannveig Þorsteinsdóttir):

Herra forseti. Mál þetta hefur legið alllengi hjá allshn. N. hefur nú athugað og rætt frv. og hefur átt viðræður um það við forustumenn Íþróttabandalags Reykjavíkur og leitað upplýsinga um, hvernig rekstur slíks happdrættis, töluspjaldahappdrættis, sé hugsaður. Slík happdrætti sem hér um ræðir eru með öllu óþekkt hér á landi. Ungmenna- og íþróttafélög hafa með höndum margs konar skemmtanastarfsemi, þar sem við mætti koma slíku happdrætti til fjáröflunar fyrir félögin. Hins vegar verður reynslan að skera úr því, á hve breiðum grundvelli sé rétt að leyfa rekstur slíkrar starfsemi. — Að hinu leytinu er það kunnara en frá þurfi að segja, að íþrótta- og ungmennafélögum er nauðsynlegt að hafa allgóða tekjustofna, og hafa ýmis félög oft verið í vandræðum vegna fjárskorts að sjá starfsemi sinni farborða. Með tilliti til þessa hefur n. lagt til, að frv. verði samþ. með eftirfarandi breytingu, sem sést á þskj. 498, að 1. gr. frv. orðist svo: „Heimilt skal dómsmálaráðherra að leyfa héraðssamböndum íþrótta- og ungmennafélaga, hverju á sínu félagssvæði. að stofna til og reka um tiltekinn tíma töluspjaldahappdrætti („Bingo“-happdrætti) í sambandi við skemmtanir, er þau eða sambandsfélög þeirra halda, samkvæmt reglum, er settar yrðu með reglugerð.“ N. var sammála um, að það skyldi tryggt, að þessi starfsemi gengi ekki úr hömlu. og var sammála um að afgr. málið á þennan veg.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta, en óska þess, að málinu verði vísað til 3. umr. að þessari umr. lokinni.