10.01.1952
Neðri deild: 55. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1051 í B-deild Alþingistíðinda. (1756)
84. mál, happdrætti íþrótta- og ungmennafélaga
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Ég flutti þetta frv. í hv. Ed. að beiðni einstakra manna úr stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur í því skyni. að íþróttafélögin gætu fengið nokkrar tekjur af þeirri sérstöku tegund happdrættis, sem hér er um að ræða. Var þá málið hugsað þannig, að þetta væri rekið í sambandi við kvikmyndasýningar. Hv. allshn. Ed. taldi, að ekki væri nógu ljóst, hvernig happdrætti þetta yrði framkvæmt og hvað í þeirri heimild fælist, sem ráðgerð var í frv., og vildi því takmarka mjög heimildina. Að athuguðu máli féllst ég á það og að þessi sérstaka tegund happdrættis verði einungis leyfð í sambandi við skemmtanir eða samkomur, sem þessi sambönd efna sjálf til og nánar segir í frv., eins og það liggur fyrir. Býst ég ekki við, að neinn geti haft á, móti svo takmarkaðri heimild. Reynslan mun sýna, hvort vert sé að velta víðtækara leyfi til slíkrar tegundar happdrættis vegna slíkrar starfrækslu. Ég tel ekki þetta frv. mikilsvert, en mæli með því. að það nái fram að ganga, til þess að sjá, hvort þetta er fær leið. Íþróttafélögunum er nauðsynlegt að hafa sér hollari tekjustofna en þau hafa áður haft. — Ég legg til, að frv. fari til 2. umr. og allshn.