10.10.1951
Efri deild: 7. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 27 í B-deild Alþingistíðinda. (18)
39. mál, lántaka vegna landbúnaðarframkvæmda
Haraldur Guðmundsson:
Herra forseti. Það er alveg rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að hér er aðeins um endurtekningu á l. frá siðasta þingi að ræða og gerir því ekki til, þótt málið komi ekki fyrir nefnd. Um þetta get ég verið honum alveg samála. Ég vil þó leyfa mér að víkja sérstaklega að tveim atriðum í þessu sambandi. Á síðasta þingi, þegar þetta mál var til umræðu, var talið, að það gæti verið mjög varhugavert að stofna til lántöku erlendis í öðru skyni en verja fénu til fyrirtækja og stofnana, sem væru þess umkomin að auka gjaldeyristekjurnar eða þá draga úr kaupum fyrir erlendan gjaldeyri, þ.e.a.s., að ráðstöfun fjárins gæti annaðhvort stuðlað að gjaldeyrisöflun eða gjaldeyrissparnaði. Á þetta var bent af ýmsum á síðasta Alþingi, en meiri hl. þingmanna leit svo á, að ekki væri hægt að halda þessari gömlu stefnu áfram, og lagði hann þá til, að lagt yrði út í nýja lántöku. Ég skal ekki taka hér upp kappræðu um það, hvort rétt sé að fara inn á þessa braut, enda þótt margur mundi hika við slíkar ráðstafanir sökum þess, að enn eru í fersku minni hinar tvær síðustu gengisbreytingar. En nú hefur verið ákveðið að taka lán hjá Alþjóðabankanum á þessu ári, sem nemur samtals um 72 millj. kr. Hæstv. ráðh. gat hins vegar ekki um það í ræðu sinni, hvort með þessum lánveitingum í ár væri girt fyrir, að frekari lán fengjust á næstunni frá þessari stofnun. Ég vil því í þessu sambandi spyrja hæstv. ráðh., hvort með þessari lánveitingu nú sé útilokað, að Alþjóðabankinn veiti lán til sementsverksmiðju þeirrar, sem fyrirhugað er að koma hér upp á næstunni. Ég vil segja, að hér sé vissulega um hliðstæðu áburðarverksmiðjunnar að ræða, og veit ég því, að hæstv. ráðh. hefur haft þetta í huga vestra, og vona ég hann geti gefið upplýsingar um þetta nú. Í öðru lagi vil ég benda á það, að ef talið er fært að ráðast í þessa lántöku til landbúnaðarframkvæmda, sem gengið er frá á þann hátt, að öll áhætta vegna gengisbreytinga lendir á bönkunum hér, þá sé ég ekki annað en bein skylda hvíli á ríkisstj. að leita sömu ráða til að bæta úr húsnæðisöngþveitinu í kaupstöðum og kauptúnum. Ég neita ekki og vil ekki draga úr þörf landbúnaðarins til aukins fjármagns, en enginn neitar öngþveitinu í húsnæðismálunum og því, að þar er brýn þörf úrbóta. Sé hægt að taka lán til þess að bæta úr fjármagnsþörf landbúnaðarins, ætti á sama hátt að vera hægt að leitast við að fá lán til hjálpar þeim, sem nauðsynlegt er að byggja íbúðarhús yfir sig og sína. Ég vil því óska þess, að hæstv. ráðh. upplýsi þessi tvö atriði: Í fyrsta lagi, hvað líði láni til sementsverksmiðjunnar, og í öðru lagi, hvort hann hafi ekki haft í huga að útvega lán til byggingar íbúðarhúsa í kaupstöðum og kauptúnum.