12.10.1951
Efri deild: 11. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í B-deild Alþingistíðinda. (185)
20. mál, hegningarlög
Rannveig Þorsteinsdóttir:
Herra forseti. Framsögumaður nefndarinnar er ekki hér staddur, og vil ég þá leyfa mér að mæla fyrir þessu nál. nokkur orð. N. athugaði frv. og bar saman við þær lagagr., sem þar er vísað til, og sá ekki neitt athugavert við það og þykir raunar sjálfsagt að gera þær breytingar, sem hér er ætlazt til og eru aðallega þessar: Þar sem talað er um „konunginn“ og „konungsvald“, komi „forsetann“ og „forsetavald“, og í staðinn fyrir „í konunglegri tilskipun“ komi „með reglugerð“, og í stað „konungur“ og „konung“ komi „forseti“ og „forsetann“. — Það eina, sem n. var hugsandi út af, var, hvort 2. gr. væri nákvæmlega orðuð eins og heppilegast væri, en þar segir: „Sé slíkum verknaði beint gegn nánustu fjölskyldu forsetans“, — þetta væri svo aftur þrengt með síðari hlutanum, sem hljóðaði þannig: „þannig að álíta megi, að broti sé stefnt að heimili hans.“ M.ö.o., að það, sem væri víkkað í fyrri hlutanum, væri aftur þrengt í þeim síðari. En þessi málsgrein kemur í staðinn fyrir ákveðna upptalningu í 101. gr. laganna nú, en þar er talað um konung, þann, sem fer með konungsvald og þriðja aðila. Það varð úr, að n. taldi sér ekki fært að gera á þessu breytingar og taldi, að af þessu mundu ekki hljótast neinir erfiðleikar, og leggur til, elns og segir á þskj. 66, að frv. verði samþ. óbreytt.