09.11.1951
Neðri deild: 25. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1092 í B-deild Alþingistíðinda. (1850)

96. mál, menntaskólar

Flm. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Það eru aðeins nokkur orð. Mér þótti mjög leitt, að hæstv. menntmrh. skyldi ekki sjá sér fært að taka betur í þetta mál en hann gerði, ekki sízt vegna þess, að ég gat ekki séð, að fram kæmu í ræðu þessari nein þau rök, er mælt gætu móti málinu. Að vísu vil ég ekki leggja þann skilning í ræðu hans, að hann mundi ekki nota þá heimild, sem fælist í l. þessum til þess að starfrækja miðskóladeild eins og hún verður samkvæmt þeim. Mér þótti sem sagt leitt, að hann skyldi ekki sjá sér fært að taka afstöðu með málinu. Hann taldi veigamestu rökin vera það, að menntaskólarnir gætu þá tekið við nemendum sínum sem yngstum. Á þetta benti einnig hv. 3. landsk. þm. Ég held, að það geti enginn á móti því mælt, að það sé ekki heppilegt að skipta oft um skóla, meðan á náminu stendur, vegna þess, hve mikilvægt þetta atriði er, og einnig vegna þess, að menntaskólarnir hafa á að skipa reyndustu og beztu starfskröftunum og hafa því góða aðstöðu til að geta tekið strax við þeim nemendum, sem hyggjast dvelja þar við nám. Það hefur líka verið vakin athygli á því, hve hættulegt það er, þegar duglegir nemendur eru hnepptir í fjötra kennslufyrirkomulagsins, þannig að þeir geta ekki fullnægt sinni námsgetu. Og það er ekki efamál, að menn, sem eru fljótir að læra, missa allan áhuga á náminn, þegar þeim finnst það auðvelt og þeir þurfa ekkert á sig að leggja.

Hæstv. ráðh. taldi varhugavert að samþ. frv. og taldi heppilegra að taka þetta upp sem breytingu á fræðslukerfinu. Mér virðist þessi leið aftur á móti heppilegri, vegna þess að hér er ríkisstj. veitt heimild til að láta miðskóladeildina starfa, en ekki um neina þvingun að ræða og hægt að laga þetta í hendi sér hverju sinni. Hann benti á þann annmarka við menntaskólann í Reykjavík, að hann væri yfirfullur og nemendur kæmust þar ekki að vegna húsnæðisleysis, en húspláss væri fyrir hendi á Akureyri. Ef hins vegar fjölgar í lærdómsdeild á Akureyri, þá er hægt að endurskoða afstöðu ráðuneytisins til miðskóladeildarinnar. Hygg ég, að í máli þessu séu engin þau rök, er snúa gegn því, sem sambærileg séu þeim rökum, er mæla með því, að leyfi þetta verði veitt. Treysti ég því svo, að hv. deild taki máli þessu með skilningi og vinsemd.