06.12.1951
Neðri deild: 37. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1108 í B-deild Alþingistíðinda. (1863)
96. mál, menntaskólar
Viðskmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Ég vil út af því, sem hv. 1. þm. Rang. sagði, taka það fram, að ég hef alltaf skilið það svo, að með þessu framlagi væri verið að setja ú stofn menntaskóla á Laugarvatni, en hv. form. fjvn. hefur sagt mér, að hann hafi skilið till. á þann hátt, að verja ætti fénu til kennslu.