13.12.1951
Neðri deild: 42. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1119 í B-deild Alþingistíðinda. (1890)

96. mál, menntaskólar

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það eru aðeins nokkur orð út af ræðu hv. síðasta ræðumanns. — Ég sagði í ræðu, sem ég hélt um þetta máli þegar það var síðast til umr., að það væri misskilinn metnaður fyrir menntaskólann á Akureyri að sækjast eftir því að hafa miðskóladeild. Ef það vekti hið sama fyrir þeim mönnum og vakti fyrir þeim, sem börðust fyrir þessum skóla í byrjun, ættu þeir að sækjast eftir að losna við slíka deild miðskóla. Hugmyndin var upphaflega að stofna menntaskóla, sem átti að helga sig því verkefni að veita nemendum meiri háttar framhaldsmenntun og útskrifa stúdenta, en nú er lagt til að breyta fyrirkomulaginn þannig að gera hann jafnframt að gagnfræðaskóla, en gagnfræðaskólarnir eru orðnir eins og partur af barnaskólunum. Væri metnaðarmál fyrir þá, sem vilja hlynna að menntaskólanum á Akureyri, að sjá til þess, að hann sem menntaskóli gæti tekið á móti sem allra flestum og gert nemendum mögulegt að vera þar í heimavist og enn fremur, að búið sé þannig að skólanum, að hægt sé að reka hann sem venjulegan almennan skóla, þ.e. einsetinn skóla, því að það er ekki nokkur mynd á að nota skólahúsin þannig, að verið sé að tvísetja í þau. Það mætti miklu frekar bæta þar við og gera betur úr garði þær skólastofur, sem fyrir eru. Þeir, sem unna menntaskóla Norðurlands. ættu þess vegna að sjá til þess, að hann væri sem fyrst losaður við þá miðskóladeild, sem reynt er að hnýta aftan í hann, því að fyrst með því móti mundi fást góður menntaskóli.

Ég álít líka, að það mundi skapa misrétti gagnvart því fólki úr öllum sveitum landsins, sem reynir að öðlast menntaskólanám, að ætla að starfrækja gagnfræðadeildir við vissa menntaskóla. Ef menntaskólakennararnir hafa sjálfir með höndum kennslu í miðskóla og gagnfræðaskóla, verkar það á þann hátt að gera þeim nemendum, sem sækja þann miðskóla, hægara fyrir en öðrum að komast upp í menntaskóla. Það er óréttlátt gagnvart öllum þeim fátæku nemendum úti um allt land, utan Reykjavíkur. og Akureyrar, að ætla að fara nú að hnýta gagnfræðaskóla aftan í menntaskóla Reykjavíkur eða Akureyrar og gera nemendum þannig misjafnlega auðvelt nm að ganga inn í menntaskóla.

Ég verð að segja í sambandi við það bréf, sem hv. 3. landsk. minntist á, frá menntaskólannum í Reykjavík, að með allri virðingu fyrir menntaskólakennurunum þar mundi ég í þeirra sporum hafa skammazt mín fyrir að senda svona bréf. Ég fæ ekki skilið þann metnað, að verið sé að draga skóla þeirra niður á við, þó að þess sé krafizt, að hann sé fyrst og fremst menntaskóli. Ég gæti fremur skilið, að það væri móðgun, ef heimtað væri, að gagnfræðadeild væri við hann. Ég sé ekki betur en það sé sá bezti menntaskóli, sem ekkert slíkt hefur tengt við sig. — Og ég fæ ekki skilið þær röksemdir, sem menntaskólakennararnir færa fram fyrir því, að unnt sé að tvísetja í menntaskólann í Reykjavík; ég far ekki skilið, hvernig kennurunum getur dottið í hug, að hægt sé að tvisetja í skólann. Allan þann tíma, sem ég hef komið nálægt slíkri kennslu, hefur það verið talið neyð að þurfa að tvísetja, og ég fæ ekki skilið, hvernig menn fá dirfzt að bera fram hér á Alþ. svona röksemdir. Ég held það ætti frekar að telja það heiður að þurfa ekki að bæta við neinum gagafræðaskóla; ég held það væri heiður fyrir menntaskólann í Reykjavík að fara ekki fram á að fá að kenna annað en kenna á við menntaskóla, en einbeita sér að því að gera skólann sem færastan til þess að útskrifa góða stúdenta. Og ég fæ því ekki skilið annað en það sé móðgun við menntaskólann í Reykjavík að samþ. þá till., sem hæstv. menntmrh. hefur borið hér fram.