10.10.1951
Efri deild: 7. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í B-deild Alþingistíðinda. (19)
39. mál, lántaka vegna landbúnaðarframkvæmda
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Núverandi ríkisstj. lítur svo á, að það eigi að vera meginstefnan að taka ekki erlend lán, nema þau leiði til aukinna gjaldeyristekna eða sparnaðar á gjaldeyrí, og hún er á þeirri skoðun, að þetta lán uppfylli þau skilyrði. Það ætti að vera auðsætt, að efling landbúnaðarins á þennan hátt leiðir til aukinnar framleiðslu á landbúnaðarvörum, bæði til neyzlu innanlands og útflutnings, og eins og stendur er kjötútflutningur að aukast til Ameríku og góðar horfur á, að markaðurinn þar sé til frambúðar.
Hvað viðvíkur þeirri spurningu hv. 4. þm. Reykv., hvort ríkisstj. hafi haft til athugunar að leita eftir láni erlendis til byggingar á íbúðarhúsum í kaupstöðum og kauptúnum, get ég upplýst, að svo hefur ekki verið. — Þá spurði hv. þm., hvort málum væri þannig komið nú, að útilokað væri að fá lán frá Alþjóðabankanum til sementsverksmiðju. Þessi lánamál standa þannig nú, að við höfum staðið í samningum við Alþjóðabankann um lán til fimm framkvæmda, Sogs- og Laxárvirkjananna, áburðarverksmiðjunnar, sementsverksmiðjunnar og landbúnaðarins. Til þessara framkvæmda hefur nú bankinn lánað sem svarar 72 millj. og 600 þús. ísl. króna. Síðustu svör bankans voru á þá leið, að bankinn mundi reiðubúinn að lána 2 millj. dollara til viðbótar, en meira mundi bankinn ekki sjá sér fært að lána til framkvæmda á Íslandi á næstunni. Þegar þetta var rætt við forráðamenn bankans, kom það í ljós, að þeir tóku þessa afstöðu ekki vegna þess, að þeir efuðust um örugga afkomu þessara fyrirtækja eða þeir drægju í efa, að Íslendingar gætu staðið í skilum með þessi lán, heldur vegna þess, að þeim er skylt og nauðsynlegt, þar sem við höfum svo miklar framkvæmdir í takinu, að fylgjast með þeim og sjá, hvernig við stöndum okkur. Við getum því sagt, að með því að ákveða, að þetta lán renni til landbúnaðarframkvæmda, útilokum við, að það renni til sementsverksmiðjunnar; sem sagt, að í bili horfi þannig, að við getum ekki fengið lán til sementsverksmiðjunnar. Ef hins vegar okkur tækist að sýna, að við getum ráðið við þessi lán, er ekki útilokað, að þessi stofnun fallist á að veita lán til sementsverksmiðju. Í þessu sambandi er rétt að geta þess, að þegar bankanum berast beiðnir um lán, lætur hann ætíð fara fram athugun á teknískum atriðum þeirra framkvæmda, sem um er að ræða, og fulltrúar bankans í þessum efnum hafa látið í ljós kvíða um það, að ekki verði hægt að ná því efni úr botni Faxaflóa, sem fyrirhugað er til verksmiðjunnar. Athugun á þessum atriðum var þó ekki fyllilega lokið, en þeir bjuggust við, að niðurstöðu mætti vænta í þessum mánuði. Ég mun því svara þessari spurningu hv. þm. þannig, að í bili getum við ekki fengið lán til sementsverksmiðjunnar, nema þá við drægjum úr annarri fjárfestingu. Hins vegar veitur þetta allt á því, hvernig okkur gengur með þessar miklu framkvæmdir, sem við stöndum nú í. Annars orðaði ég þetta atriði þannig í skýrslunni, sem ég gaf við 1. umr. fjárlaganna, að dráttur gæti orðið á frekari lánveitingum af bankans hendi. Hvað þessi dráttur verður langur, fer eftir því, hvernig okkur tekst að stýra fjárhagsmálum okkar.