25.10.1951
Neðri deild: 18. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 59 í B-deild Alþingistíðinda. (196)
20. mál, hegningarlög
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Það mun vera meiningin með þessu frv. að nema burt ákveðinn arf frá því er Ísland var konungsríki. Hins vegar gerir það ráð fyrir að setja í staðinn svipuð ákvæði um forseta lýðveldisins og forsetavald. Það er eitt atriði í frv., sem mig langar til að fá skýringu á hjá frsm. allshn. Það er í 2. gr. frv. Samkvæmt henni á að orða um 2. málsgr. 101. gr. og hún að orðast svo: „Sé slíkum verknaði beint gegn nánustu fjölskyldu forsetans, þannig að álíta megi, að broti sé stefnt að heimili hans, má auka refsingu svo, að við hana sé bætt allt að helmingi hennar.“ Mig langar nú til að fá skýringu á því, hvað sé átt við með nánustu fjölskyldu forsetans, hvað það nái til margra. Það er fróðlegt að athuga það í þessu sambandi, að við höfðum einu sinni konung og konungsefni. Ég vildi fá þetta betur upplýst, hvað átt er við með og hvernig beri að skilja orðin „nánasta fjölskylda“.