11.01.1952
Efri deild: 57. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1160 í B-deild Alþingistíðinda. (1966)
47. mál, öryggisráðstafanir á vinnustöðum
Frsm. minni hl. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Ég vil aðeins, áður en ég sný mér að aðalræðunni, sem bæði verður löng og ýtarleg, láta í ljós undrun mína yfir nál. meiri hl. Mér skildist, að það væru tveir nm., sem ekki væru tilleiðanlegir til að samþ. frv. eins og það liggur fyrir. Þetta mál er þannig, að það hefur gengið gegnum 6–8 umr. í Nd. Á undanförnum þingum hefur það verið margrætt, en aldrei verið samþ. vegna þess, að alþm. hafa verið tregir til að afgr. málið. Það er því ekki hægt að segja, að hv. þm. hafi ekki haft aðstöðu til að athuga málið.
Ég verð að segja, að mér þykir mjög miður, að iðnmrh. skuli ekki vera viðstaddur, en ég er ekki að ásaka hæstv. forseta. Þó að hann eigi ekki sæti í þessari d., þá heyrir málið undir hann, og væri æskilegt, að hæstv. ráðh. vildi sýna jafnmikinn áhuga fyrir þessu máli og hæstv. dómsmrh. sýnir, því að það tel ég til fyrirmyndar. Ég vildi mælast til þess við hæstv. dómsmrh., að hann láti boð ganga til hæstv. ráðh. að mæta hér.
Upphaf þessa máls er það, að borin var fram þáltill. um, að skipuð yrði milliþn. til þess að endurskoða l. um eftirlit með verksmiðjum og vélum. Það var 12. febr. 1947. Þáltill. þessi var samþ. á því þingi, en iðnmrh. var þá hv. þm. Hafnf., Emil Jónsson. Þáltill. var borin fram vegna kvartana, sem borizt höfðu frá þeim, sem greiddu gjöldin. Þetta sést í grg. þessarar þáltill. Hún byrjar á því að gera grein fyrir, hversu þessi mál hafa verið vanrækt. Nefnd þessi skilaði verki á árinu 1948, og kostaði sú rannsókn 60 þús. kr. Undirbúningur þessarar lagasetningar kostaði nú þetta. Þáverandi ráðh. var á sínum tíma mjög ásakaður fyrir það að hafa greitt 60 þús. kr. fyrir þetta verk. Mönnum sýndist ekki vera það verðmæti í þessu verki n. Frv. var síðan borið fram í Nd. á þingi 1949 og komst til Ed. og sömuleiðis á síðasta þingi, en var afgr. 15. febr. með rökstuddri dagskrá, sem ég vil leyfa mér að lesa hér upp, en hún var gefin út af iðnn. 6. febr. 1951:
„Í trausti þess, að ríkisstj. láti athuga frv. á ný og m.a., hvort ekki sé hagkvæmt og eðlilegt að sameina skipaskoðun ríkisins og verksmiðjueftirlit undir eina öryggismálastofnun og hve mikið það kynni að spara í útgjöldum, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“
Ég harma, að ríkisstj. skyldi ekki gera neitt í þessu máli á síðasta ári. Ég skal viðurkenna, að þáv. iðnmrh. gerði þá fyrirspurn til mín á liðnu sumri, hvort ég vildi ekki taka að mér að jafna þann misskilning, sem orðinn var út af máli þessu. Nú er þetta mál ekki persónulegt, en er mál, sem snertir alla þjóðina. Ég taldi ágreininginn í þessu máli það mikinn, að ekki yrði hægt að samræma sjónarmiðin, nema með mikilli vinnu, en ég fékk ekki önnur tilmæli eða fyrirmæli.
Ég skal þá gera grein fyrir hér, í hverju nýmæli þessa frv. eru fólgin eins og málið var afgr. frá mþn. Þess misskilnings hefur orðið vart, að hér sé um ný l. að ræða, sem fyrirbyggi slysahættu. Málið hefur verið túlkað svo í Nd. Hins vegar ber málið litlar umbætur frá gildandi lögum. Gildandi lög geta komið öllu því fram, sem í frv. felst, með reglugerðarbreytingu. Það er hinn mesti misskilningur, að lög þessi breyti nokkru varðandi eftirlit með skipum og vélum í landinu. Hins vegar mun frv. þetta, ef að lögum verður, skapa útgjöld svo að hundruðum þús. kr. nemur. Meginmálið, sem í frv. var, var að taka upp í það ýmis reglugerðarákvæði. Það má deila um það, hvort æskilegt sé að gera slíkt, hvort eigi t.d. að setja í lög stærð gólfflatar, hve hátt sé undir loft í vinnusal. Þetta má kannske deila um, hvort frekar eigi heima í löggjöf eða reglugerð. Frv. virðist því frekar vera reglugerðarákvæði, og stoðar þó varla að setja í lögin ákvæði um þau atriði, sem breytileg eru frá degi til dags.
Annað nýmæli er það, að ný stofnun er sett á stofn með frv. þessu undir stjórn öryggismálastjóra. Hins vegar virðist manni það nú vera heldur lítils virði, hvort forstjóri skipa- eða vélaeftirlitsins skipti um nafn, hvað titil snertir. Í þessu sambandi vildi ég einnig benda á, að hér eru þrjú eftirlit. Það er eftirlit með flugvélum, sem kostar 100 þús. kr., eftirlit með vélum og verksmiðjum, sem kostar um 280 þús. kr., eftirlit með skipum og bátum, sem kostar 500 þús., og svo er eftirlit með bifreiðum, sem kostar 1 millj. kr. Ég hefði því getað fellt mig við, að þessi eftirlit yrðu sameinuð undir eina stjórn og eina stofnun, sem héti öryggisráð. Í öryggisráði ættu að eiga sæti fulltrúar frá þeim aðilum, sem borga slysin, þ.e. fulltrúar frá vátryggingarfélögunum og Tryggingastofnun ríkisins. Nd. hefur hvað eftir annað fellt í burtu öryggisráðið. Nú er það svo, að eftirlit á sjónum og í verksmiðjum gripur hvað inn í annað. En hvað er það, sem veldur, að ekki er hægt að sameina þetta? Það stafar af því, að hvorugur forstjórinn vill beygja sig undir hinn. Hins vegar vill nú svo til, að annar þessara manna, forstjóri Skipaskoðunar ríkisins, er að nálgast það að verða sjötugur (er að ég held 68 ára), og ætti því að nota tækifærið til að sameina skipaeftirlitið og verksmiðjueftirlitið undir eina stjórn. Virðist sú ráðstöfun vera eðlileg og sjálfsögð.
Þá er hér nýmæli, að eftirlit sé haft með allri skrifstofuvinnu í landinu. Eftir þessu ætti þá að hafa eftirlit með t.d. þingskrifurunum, að þeir sitji réttir í stólunum og fái ekki hryggskekkju. Á skrifstofum þyrfti að gæta þess, að hver starfsmaður fengi stól við sitt hæfi, en það á ekki að hafa eftirlit með því, hvort starfsmennirnir gera nokkuð.
Hér eru einnig ákvæði um nákvæmt eftirlit með fermingu og affermingu skipa. Á öll þung flutningsstykki skal þyngd þeirra greinilega merkt. Til þess að fylgjast með því, að það verði gert, þarf marga eftirlitsmenn. Þurfa þeir að fara út í hvert skip, sem flytur vörur til lands eða úr landi, til þess að fylgjast með þessu. Ég er alveg viss um, að hv. flm. þessa frv. hefur ekki hugsað út í þessar afleiðingar né litið á þessa hlið málsins. En ég veit hins vegar, hvernig þetta ákvæði hefur komizt hér inn. Það er vegna þess, að einn af okkar ágætu fyrrverandi þm. flutti frv. um það hér á Alþ., að ekki mætti flytja neitt stykki milli skips og lands, nema athugun færi fram. En hv. þm. hefur ekki hugsað út í, hvað þetta mundi kosta. Ég get vel skilið það, að þar sem atvinnuleysi er í landinu, þá mundi þetta veita hundruðum manna atvinnu, og það er alltaf bót. — Hér á eftirlitsmaðurinn ekki aðeins að sjá um, að þessir bögglar séu vigtaðir, og fullvissa sig um, að þeir fari ekki yfir ákveðna vigt, heldur á hann líka að sjá. um, að allir krókar, lásar og vindur, sem notaðar eru, séu í bezta lagi. — Að vísu nær þetta skipaeftirlit ekki lengra en til íslenzkra skipa. Ég efast líka um, að þótt slíkur eftirlitsmaður væri sendur um borð í erlent skip, yrði tekið á móti honum. Ég efa einnig, að slík lög geti fyrirskipað erlendum skipstjóra að beygja sig undir slíkt eftirlit.
Einn liðurinn er um byggingarvinnu. Það eru tekin í lög nýmæli um að hafa miklu nákvæmara eftirlit með byggingarvinnu en gert hefur verið. Finnst mér það mjög eðlilegt, að hafa verður allan útbúnað, verkpallana og annað öruggt. Forstjórinn fyrir eftirlitinu tilkynnti mér, að hann hefði nú undirbúið reglugerð, sem sé um endurbætur á þessu sviði, bæði í sambandi við byggingarvinnu og önnur nýmæli, sem ég mun koma að síðar. Hann fullvissaði sig um, að með gildandi l. væru engin vandkvæði á, að hægt væri að undirbúa reglugerð, sem fyrirbyggði öll slys í sambandi við byggingarvinnu.
Þá er það eitt nýmælið, að líta þarf eftir farandvélum. (Forseti: Ég vil leyfa mér að spyrja, hvort mikið sé eftir af ræðunni.) Ég á eftir að tala í einn tíma eða tvo. (Forseti: Þá er ekki tími til að ljúka ræðunni að sinni, og verður ræðumaður að fresta henni.) — [Frh.]