14.01.1952
Efri deild: 58. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1163 í B-deild Alþingistíðinda. (1968)
47. mál, öryggisráðstafanir á vinnustöðum
Frsm. minni hl. (Gísli Jónsson) [frh.]:
Herra forseti. Ég hefði viljað óska eftir, að hæstv. iðnmrh. væri hér viðstaddur þessa umr., ef hann sæi sér það fært. Ég sá hann hérna inni í hliðarherbergi áðan. Ég hefði gjarnan viljað gera þá fyrirspurn til hæstv. ráðh., hvort hann sæi ekki ástæðu til að vera viðstaddur umr. um þetta mál. Mér er kunnugt um það, að hv. meiri hl. n. stytti mál sitt á síðasta fundi vegna þess, að ekki var hægt að fá yfirlýsingu hæstv. ráðh. um það, hvort ekki yrði hægt að gera ráðstafanir til að sameina allt eftirlitið, ef frv. næði ekki fram að ganga. En úr því að hæstv. ráðh. er hér viðstaddur núna, vil ég benda á, að þetta eftirlit á vinnustöðum mun kosta ríkið um 184 þús. kr. á ári, en skipaeftirlitið kostar nú 500 þús. kr. og bifreiðaeftirlitið eina millj. kr. á ári. Það virðist því mundi vera að fara aftan að hlutunum að setja öryggismálastjóra yfir þetta eftirlit, sem hér er um að ræða, en skilja hin tvö eftirlitin eftir, sem eru miklu umfangsmeiri. — Ég læt þetta koma skýrt fram vegna þess, að n. var mjög hugsandi um þetta atriði, hvort ekki væri rétt að setja allt öryggiseftirlit í landinu undir eina stofnun, en vegna þess, að engin vitneskja lá fyrir um það hjá n., hvort till. í þá átt mundi bera frekari árangur en sú rökst. dagskrá, sem samþ. var hér í fyrra, þótti okkur hv. þm. Vestm. réttara að bera fram sérstakar till. í þessu máli og reyna þá að fá úr því skorið, hvaða ágreiningur væri um þetta mál. Það er sýnilegt, að þótt þetta mál hafi verið rætt í 6–9 umr. í Nd., þá hafa flestir hv. þm. þar látið sér nægja að byggja á áliti n. um málið, en ekki reynt til þess að setja sig sjálfir inn í málið. Ég vil nú freista þess að lýsa þessu máli nánar en ég gerði á síðasta fundi, einkum ef hæstv. ráðh. hefur áhuga á að fylgjast með, sem getur komið sér vel fyrir hann upp á framkvæmdina í framtíðinni.
Þegar ég frestaði ræðu minni um daginn, hafði ég sýnt fram á, hvaða nýmæli væru í þessu frv. og breyt. frá þeim l., sem eru til um þetta efni, og einnig hafði ég sýnt fram á, að hér er ekki um nýja löggjöf að ræða, heldur breyt. á lögum, sem nú eru til, útvíkkun á þeim og færðar inn í þau reglugerðir í þessum etnum, því að nú er ætlazt til m.a., að eftirlitið nái yfir allar skrifstofur í landinu og einnig yfir upp- og útskipun vara í öllum höfnum landsins. Mér þykir rétt að benda á það hér, að aðalástæðan fyrir því, að þetta mál var sett í mþn. á sínum tíma, var bréf frá Verkamannafélaginu Hlíf í Hafnarfirði, þar sem fram voru bornar þungar ákærur á verksmiðju- og vélaeftirlitið í landinu. Ég vil leyfa mér að lesa upp stutta grein úr þessu bréfi frá Hlíf, með leyfi hæstv. forseta:
„Reynsla af núgildandi lögum um eftirlit með verksmiðjum og vélum er að því leyti er oss er kunnugt sú, að í framkvæmdinni hafa þau verið aðeins til á pappírnum, því að þeir, er sjá hafa átt um framkvæmd þeirra, eftirlitsmennirnir, hafa ekki látið sjá sig nema endrum og eins og því ekki séð um, að nefndum lögum væri framfylgt. Starfandi eru í þessum bæ verkstæði og verksmiðjur, sem aldrei hafa verið skoðuð af eftirlitsmönnum. Sömuleiðis eru í notkun stórvirkar vélar og áhöld, er aldrei hafa verið skoðuð.“
Þetta var meginástæðan fyrir því, að það þótti nauðsynlegt að setja mþn. á sínum tíma til að rannsaka þetta mál. Kemur það glöggt fram í grg., sem mþn. samdi. Nú er eðlilegt, að menn spyrji sem svo, hvort þetta slæma eftirlit hafi ekki stafað af því, að of fáir menn störfuðu við eftirlitið, eða hvort lögum eða reglugerðum í þessu efni hafi verið ábótavant. Þessu svarar mþn. síðar í grg. sinni, þar sem segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Skoðanir þær, sem um getur í skýrslunni, eru að langmestu leyti framkvæmdar af tveim mönnum. Nefndin telur sig ekki vera dómbæra á það, hvort þær, ásamt skrifstofuvinnu í sambandi við þær, séu hæfilegt starf tveggja manna eða ekki. En skrifstofustarfið virðist taka allmikið af starfstíma skoðunarmannanna, eða 3–4 fyrstu mánuði ársins, svo að skoðanir eru lítt framkvæmdar á þeim tíma, enda berist eftirlitinn ekki sérstök beiðni um skoðun.“
Hér kemst mþn. sem sagt að þeirri skoðun, að um 25% af starfi skoðunarmanna eftirlitsins fari í þýðingarlítið skrifstofustarf, og hygg ég, að ef þetta frv. nær fram að ganga eins og það er nú, muni þetta skrifstofustarf aukast upp í 75%, eða m.ö.o., hið gagnslausa starf eftirlitsins mundi aukast úr 25% upp í 75%. Þetta er mín skoðun á málinn. Mþn. taldi sér skylt að eyða allverulegum hluta af starfstíma sínum í að reyna að rannsaka, hvort ástæða væri til að kvarta undan eftirlitinu. Hún kemst þó ekki að þeirri niðurstöðu, að til þess sé ástæða út af fyrir sig að kvarta undan véla- og verksmiðjueftirlitinu, en gerir þó þessa aths., að það fari nokkuð mikið af tíma eftirlitsins í skrifstofustörf. — Nú er fróðlegt fyrir hv. alþm. að vita það, að í fjvn. hefur það verið upplýst, að á skrifstofu véla- og verksmiðjueftirlitsins í Reykjavík vinna tveir menn með vélfræðiþekkingu og ein stúlka, og eru báðir þessir menn fastlaunaðir, og hefur annar þeirra um 47 þús. kr. árslaun, en hinn um 32 þús. kr., og er svo kveðið á í reglugerð eftirlitsins, að þeir megi ekki taka að sér aðra vinnu. Nú er það hins vegar upplýst, að báðir þessir menn hafa tekið að sér kennslustörf og hafa fyrir það milli 20 og 30 þús. kr. Það virðist því, að eftirlitið, a.m.k. hér í Reykjavík, hafi nóga starfskrafta, en að þessir starfskraftar séu bara ekki notaðir eins og vera ber, úr því að eftirlitið getur leyft sér, og það sjálfsagt með leyfi ráðherra, að láta þessa menn gegna öðrum umfangsmiklum störfum jafnframt eftirlitinu. Það virðist því fyrsta skrefið til að bæta úr þessum málum að skipa þessum mönnum að gegna betur sínum störfum og hætta við aukastörfin. Ég skal taka það fram, að þetta dæmi er ekki tekið til að ófrægja þá menn, sem þarna eiga í hlut, þar sem þeir munu ekki bera meiri sök í þessu efni en aðrir starfsmenn hins opinbera, því að það eru hópar af embættismönnum ríkisins, sem eru á föstum launum, en taka þó að sér önnur störf fyrir dagkaup, og því er engin ástæða til að beina geiri sínum að þessum tveimur mönnum frekar en öðrum, sem eins er ástatt um. Er kennarastéttin þarna ekki útundan, sem er á föstum launum, en hefur þó 2–3 mánaða frí á ári.
Mér þótti rétt að láta þetta koma fram, vegna þess að það virðist skoðun ýmissa, að eftirlitíð sé lélegt af því, að það vanti menn í það, en ég hef sýnt fram á, að það er miklu fremur vegna þess, að þeir starfskraftar, sem eftirlitið hefur nú, eru ekki nýttir fullkomlega. Ég veit líka, að eftirlitinu hefði aldrei verið neitað um aukna starfskrafta, ef það hefði verið séð, að með því mætti koma í veg fyrir mörg slysin með betra eftirliti.
Síðar í þessari grg. mþn. eru margar aðrar aths., sem sýna, að ef frv. yrði samþ. eins og það er í dag, mundi hér verða um pappírslög að ræða, sem mundu aðeins hafa í för með sér gagnslaust skrifstofubákn.
Ég skal þá fara hér nokkrum orðum um þær brtt., sem minni hl. iðnn. hefur lagt fram, því að það er nauðsynlegt að skýra þær nokkuð hér, því að hv. þm. hljóta að byggja nokkuð afstöðu sína á slíkum skýringum.
Það er þá fyrst brtt. við 1. gr., og er sú brtt. í fernu lagi. 1. liðurinn er um það, að í stað orðanna „einn verkamaður“ í 1. málsgr. komi: 3 verkamenn. — Nú er í lögum, að starfsemi þessi nái til, þar sem þrír verkamenn eða fleiri vinna, en nú er ætlazt til samkv. frv., að eftirlitið nái til allrar starfsemi, þótt ekki vinni nema einn verkamaður. Með þessu ákvæði mundu falla miklu fleiri starfsgreinar undir eftirlitið, og teljum við í minni hl. ekki ástæðu til að setja undir eftirlit, þótt t.d. einn maður vinni með lærling, auk þess sem í frv. er ákvæði um það, að eftirlitið skuli ná til, þar sem notuð er orka, sem er eitt hestafl eða meira, og á því að vera gengið nokkuð örugglega frá þessum hlutum. Mér finnst því sjálfsagt að samþ. þessa brtt.
B-liður þessarar brtt. er þess efnis, að í stað orðanna „á skipsfjöl, enda sé ekki um sérstök verksmiðjuskip að ræða“ komi: á skipum, sem eru undir eftirliti skipaskoðunarstjóra. — Með öðrum orðum, að undantekningin, sem getið er um í 1. lið 1. gr., nái þá til skipa, sem eru undir eftirliti skipaskoðunarstjóra. Við teljum ekki einungis rangt, heldur og hættulegt að hafa skipin undir eftirliti tveggja stofnana, því að ef þessi gr. yrði samþ. óbreytt, er eftirliti skipa yfir 6 smál. skipt á milli skipaeftirlits ríkisins og véla- og verksmiðjueftirlitsins. Þetta tel ég skaðlegt, úr því að þessar stofnanir eru ekki sameinaðar eins og ég álít réttast að gera.
C-liður brtt. er þess efnis, að á eftir 4. tölulið komi nýr töluliður, er orðist svo: almenn skrifstofuvinna. — Við teljum rétt, að allar almennar skrifstofur verði undanþegnar lögum þessum, og ég vil beina því til hæstv. ráðh., hvað hann haldi, að það muni kosta ríkið, ef hver einasta skrifstofa, þar sem vinnur kannske ekki nema einn maður og ein stúlka, á að koma undir eftirlit, allar skrifstofur landsins, allar verzlunarskrifstofur og jafnvel skrifstofa Alþingis líka, Það væri heill hópur manna, sem þyrfti til að líta eftir skrifstofunum, því að eftir því, sem maður hefur getað komizt næst, þá er þessi skoðun á skrifstofunum hugsuð þannig, að jafnvel verði hægt að fullvissa sig um, að þeir stólar, sem fólkið situr á, séu þægilegastir og beztir fyrir þá, sem þá nota, þeir séu hæfilega háir, hæfilega mjúkir og hæfilega hallandi á bakið o.s.frv., og má nærri geta, hvílíkt gífurlegt eftirlit þyrfti til þessa. T.d., ef skipta þyrfti nú um stól eða fá nýjan skrifara, þyrfti að sjálfsögðu að fylgjast með því öllu, og ef stólarnir væru nú skrúfaðir, yrði að hafa á þeim öryggisólar til að tryggja, að ekki væri hægt að hreyfa við þeim. — Hin hliðin á skrifstofueftirlitinu mundi svo verða sú, að haft yrði eftirlit með því, hvort skrifstofurnar eru nógu stórar, hvort það er nægilega stór gólfflöturinn og nægilega margir kúbíkmetrar af lofti á hvern mann, sem í skrifstofunni vinnur, o.s.frv., og má nærri geta, hvílík vinna yrði við þetta eftirlit, ef þessi lög ættu að verða eitthvað annað en pappírslög. Ég álít því, að þetta starf eigi að undanþiggja l., eins og t.d. vinnu í einkaíbúð vinnuveitanda og almennan búrekstur.
Þá kemur d-liður þessarar brtt., sem er um það, að í stað orðsins „öryggismálastjóri“ í 3. mgr. — og hvarvetna síðar í frv. — komi: forstjóri véla- og verksmiðjueftirlitsins. — Þessi brtt. byggist á því, að við leggjum ekki til, að hér verði sett á fót stofnun með öryggismálastjóra og öryggisráði. Að vísu var öryggisráðið fellt niður úr frv. í hv. Nd., en eftir að búið er að setja öryggismálastjóra, sé ég ekki annað en því hljóti að fylgja, að settir verði 1–2 öryggismálastjórar yfir skipaskoðunina og 5–6 yfir bílaeftirlitið, eða þá að öllu eftirlitinu verði steypt saman, eins og n. virðist mundi geta fellt sig við. Ég álít því, að þessa brtt. ætti að samþ.
Í þessari gr. er gert ráð fyrir, að allur búrekstur verði undanþeginn l. Ég vil nú bara spyrja, hvaða samræmi sé í því að undanþiggja allan búrekstur, en taka allt það með, sem ætlazt er til í frv., þar sem búrekstur er nú farið að reka með mikilli vélanotkun og í heyhlöður settir inn allt að 10 kílówatta rafmagnsmótorar, svo að eitthvað sé nefnt, og við það vinna kannske 1–3 menn, auk þess sem þessir menn vinna með traktorum og alls konar heyvinnsluvélum, sem ekki eru síður hættulegar en margar aðrar vélar, sem settar eru undir eftirlit. Það virðist meiri ástæða til að setja eftirlit á þessu sviði en t.d. með skrifstofustarfi, hvernig þessir og þessir stólar skuli vera og þessi og þessi gólfflötur o.s.frv. Ef það á að setja eftirlit með því, hvernig setið er á stólum í hinum og þessum skrifstofum, þá er áreiðanlega meiri ástæða til þess að setja eftirlit með búrekstri, sem rekinn er með vélakosti. Það væri t.d. miklu nauðsynlegra að hafa eftirlit með því, hvernig mjólka skuli kýr í 100 kúa fjósi, en hvernig stólarnir skuli vera í skrifstofu. (PZ: Það eru engir stólar notaðir þar, sem mjólkað er með vélum.) Nei, en það er þá mjólkað með vélum, sem þyrfti að hafa eftirlit með, og ég hef nýlega átt þess kost að koma í fjós, þar sem notuð var alls konar véltækni við fjósstörfin. Ég vil því geyma mér rétt til að bera fram brtt. um þetta atriði, ef farið verður inn á eftirlit eins og gert er ráð fyrir í frv.
Þá er við 2. gr. brtt. undir a-lið um, að í stað orðsins „einn“ í 2. málsgr. komi: þrjá, — það er afleiðing af 1. brtt., — og undir b-lið, að í stað orðsins „tveim“ í 3, málsgr. komi: fjórum. — En í gr. segir nú: „Sé fyrirtæki, sem l. þessi ná til, rekið af tveim mönnum eða fleiri í sameiningu, telst aðeins annar eða einn þeirra vinnuveitandi.“ Þessu viljum við breyta þannig, að það gildi þar, sem fyrirtæki er rekið með 4 mönnum.
C-liður er einnig afleiðing og þarf ekki skýringa við, og d-liður, að í stað orðsins „öryggiseftirlitinu“ í 3. mgr. — og hvarvetna síðar í frv. — kemur: véla- og verksmiðjueftirlitinu, — það er afleiðing af því, sem felst í brtt. við 1. gr. Ef felldur er niður öryggismálastjórinn og haldið forstjóra véla- og verksmiðjueftirlitsins, þá er sjálfsagt að breyta orðalaginu, og þarf það ekki skýringa við.
Þá leggjum við til í 3. till., við 6. gr., að síðasta mgr. falli niður, en síðasta málsgr. 6. gr. er þannig: „Þegar verkamönnum er ætluð sérstök matstofa, sem öryggiseftirlitið hefur viðurkennt, er þeim óheimilt að neyta matar sins annars staðar á vinnustað.“ Ég álít það frámunalega fjarstæðu, þó að á einhverjum vinnustað sé ákveðin stofa, þar sem hægt er að matast, að þá eigi með löggjöf að banna verkafólki á sólskinsdegi að drekka kaffi úr hitabrúsa undir beru lofti. En það eru margar svona fjarstæður í þessu frv., þegar það er athugað. Þess utan er þetta ekkert annað en reglugerðarákvæði. Hins vegar er sjálfsagt, að hreinlætis skuli gætt. Við leggjum því til, að þetta ákvæði verði látið falla niður. En þetta sýnir, hvernig þetta mál er undirbúið, þegar ekki er hægt að ganga frá svona auðskildu atriði, án þess að hægt sé að gagnrýna það.
4. till. er við 7. gr. Þar leggjum við til, að aftan við síðari málsgr. bætist: „enda sé þar viðvörun á áberandi stað, að óviðkomandi sé bannaður aðgangur.“ Þetta er að sjálfsögðu ekki stórt atriði, en í 7. gr. er kveðið svo á, að það megi banna mönnum að fara inn á ákveðin svæði, og er þá eðlilegt, að sú skylda hvíli á vinnuveitanda, að það sé auglýst, svo að ekki sé um mistök að ræða.
5. till. er við 8. gr., að síðari málsl. falli niður, en hann hljóðar þannig:
„Í þeim reglum geta verið ákvæði um takmörkun vinnutímans, að verkamenn innan 13 ára aldurs séu eigi látnir framkvæma verkið og eigi heldur verkamenn, sem hafi annaðhvort ekki nægilegt líkamlegt eða andlegt atgervi til vinnunnar.“
Þessi málsgr. er ekkert annað en reglugerðarákvæði, en það er vitað, að um þessi atriði er samið milli vinnuveitenda og vinnuþiggjenda almennt, svo að það er ekki einu sinni ástæða til að setja það í reglugerð, og því siður er ástæða til að setja það í löggjöf. Þess vegna leggjum við til, að þetta ákvæði falli niður.
6. brtt. er við 9. gr., að aftan við gr. bætist: „nema hún tæki lengri tíma en hálfa klst. fyrir hvern verkamann.“ Mér þykir nauðsynlegt að ræða þetta atriði nánar. Í 9. gr. segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Ráðherra getur ákveðið, í samráði við öryggismálastjóra, að fram fari reglubundin læknisskoðun verkamanna, enda sé ástæða til að ætla, að á þann hátt megi koma í veg fyrir eða hefta atvinnusjúkdóma til muna. Þegar svo stendur á, er vinnuveitandi skyldur til að gefa verkamönnum frí frá störfum, án skerðingar á kaupi, til þess að skoðun geti farið fram.“
Ég er út af fyrir sig sammála um þetta, þegar svo stendur á, að skoðun tekur ekki lengri tíma en hálftíma, en ef hún tekur lengri tíma, þá er ekki réttlátt að leggja þá byrði á vinnuveitanda. Það koma þá allt aðrir aðilar til greina til að taka þátt í kostnaði við skoðunina. Hér er um að ræða ef til vill vinnutap yfir fleiri daga, og kemur þá sjúkrasamlagið til greina. M.a. er hægt að taka mann og halda honum undir skoðun í fleiri vikur. Ég veit dæmi þess, að einu maður var tekinn af skipsfjöl og honum haldið 30 daga til að skoða hann. Það er því ekki nein sanngirni í því að leggja þá byrði á vinnuveitanda hans að greiða full laun allan þann tíma, sem skoðun stendur. Við í minni hl. erum sammála um, að rétt sé að láta skoðun fara fram, hvort sem það er endurskoðun eða önnur skoðun, en við viljum, að það sé skyndiskoðun, sem ekki taki meira en hálftíma fyrir hvern mann. Hér eru til fyrirtæki með 300 manns. og þá er um 150 tíma að ræða, sem verður greitt af vinnuveitanda; við sjáum ekki eftir því, en ef um ótakmarkaðan tíma er að ræða og vinnuveitandi á að borga laun, þó að skoðunin taki 80 daga, þá teljum við það fjarstæðu og leggjum því til, að þessu verði breytt.
Þá er 7. brtt., við 10. gr., að orðin „seljandinn eða“ í síðari málsgr. falli niður, en síðari málsgr. 10. gr. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Ef vélar, verkfæri, áhöld og annar útbúnaðar, sem notaður er við vinnuna, er þannig gerður, að nauðsynlegt sé að sannreyna styrkleika hans eða önnur gæði eða rannsaka hann á annan hátt, ber seljandinn eða eigandinn allan eða nokkurn hluta kostnaðarins af rannsókninni eftir nánari fyrirmælum ráðherra.“
Við sjáum ekki, hvernig hægt er með löggjöf að leggja þessa skyldu á herðar seljanda, sem kann að vera einhvers staðar úti í heimi. Þess utan er ekkert sagt um það í þessari gr., að þetta skuli háð því skilyrði, að það skuli sannreyna styrkleikann, hér er aðeins ákveðið, að hvenær sem eftirlitsmaður reyni styrkleikann, þá skuli seljandinn, sem hefur selt hlutinn fyrir 2–4 árum, vera ábyrgur um skoðunarkostnaðinn. Þetta teljum við fjarstæðu. Hins vegar er eðlilegt, að eigandinn á hverjum tíma sé ábyrgur, að svo miklu leyti sem hægt er að gera hann ábyrgan. Þess vegna teljum við, að þetta orð eigi að falla niður.
Þá er 8. till., við 12. gr., þ. e., að í stað orðanna „verzlunarstöðum, skrifstofum, við fermingu og affermingu skipa, mannflutninga og aðra flutninga og við aðra starfsemi, eftir því sem ástæða þykir til“ komi: eða við sérhverja aðra starfsemi, sem skylt er að hafa eftirlit með samkvæmt lögum þessum. — Við teljum ekki þörf á að telja þetta upp, vegna þess að við gerum till. um, að margt af þessu verði fellt niður.
Í sambandi við 12. gr. vil ég taka það fram, að henni hefur verið breytt mjög verulega í Nd. Hún var langur kafli um það að setja inn í l. núverandi reglugerð um stærð á vinnustofum, lofthæð o.s.frv., og við teljum ekki, frekar en Nd., að það eigi að vera í l. Þetta er háð svo miklum breyt., að það er eðlilegt, að það sé í reglugerð, en ekki í l. Við vitum ekki til, að nokkurn tíma hafi komið fyrir, að ekki hafi verið hægt að framkvæma fullkomið eftirlit, þó að það aðeins standi í reglugerð í staðinn fyrir l. En eftir því, sem hv. flm. frv. hefur tjáð mér, þá telur hann þó, að ákaflega mikið verðmæti hafi fallið burt með því að breyta þessum kafla, þó að ég geti ekki séð, að það hafi þýðingu, en það sýnir, að áhugi þeirra, sem hafa samið þetta, liggur aðallega í því að gera reglugerðir, sem helzt ekki mega vera tímabundnar yfir langt árabil, að fastákveðnum lagafyrirmælum.
9. brtt. okkar er við 13. gr., að í stað tveggja síðustu málsgr. komi ein málsgr., sem orðist svo: „Ráðherra setur, að fengnum till. forstjóra véla- og verksmiðjueftirlitsins, reglugerð um varnir gegn slysum við mannvirkjagerðir, hverju nafni sem nefnast.“ Það er miklu eðlilegra og má búast við betri árangri með því, að ráðh. setji slíka reglugerð, en að setja þetta í l. nú og verða svo að breyta þessu frá ári til árs, eftir því sem tímarnir breytast. Hygg ég, að ekki sé ágreiningur um það atriði, sérstaklega eftir að búið er að fella niður að mestu leyti 12. gr. frv.
10.–13. brtt. eru allar um það, að 14., 16., 17. og 21. gr. falli niður, en 14. gr. er slík, að til þess að skýra þetta atriði, þá verð ég að lesa hana upp, með leyfi hæstv. forseta. Fyrstu málsgr. hljóðar svo:
„Enginn framleiðandi eða seljandi má láta af hendi vélar, vélahluta, verkfæri, áhöld eða annan útbúnað, sem lög þessi ná til, nema ákvæðum laga þessara og reglugerða, sem settar eru samkvæmt þeim, sé tryggilega fullnægt, og skal allur nauðsynlegur öryggisútbúnaður fylgja vélunum.“
Ég vil í sambandi við þessa málsgr. benda á, að l. mæla svo fyrir, að allt þetta skuli skoðað af eftirlitsmanni, og þar af leiðandi er ekki hægt að setja af stað neina verksmiðju fyrr en viðkomandi aðili er búinn að gefa vottorð, svo að þetta er óþarft og á ekki heima í gr. — Enn fremur segir í gr.: „Sá, sem setur upp vélar, vélahluta, verkfæri, áhöld eða annan útbúnað, sem lög þessi ná til, ber ábyrgð á því, að ákvæðum laga þessara og reglugerða, sem settar eru samkvæmt þeim, sé fullnægt.“ Öll þessi fyrirtæki heyra undir eftirlit, og þarf því ekki að taka það fram í þessari gr.
Fjórða málsgr. er um það, að þetta skuli tilkynnt öryggismálastjóra. Þetta er ákaflega þunglamalegt ákvæði og verður aldrei framfylgt, og þess vegna er ekki ástæða til að hafa þetta í gr.
Svo stendur síðast í gr.: „Raforkuver skulu láta öryggiseftirlitinu í té upplýsingar um sölu þeirra á raforku, eftir nánari fyrirmælum ráðherra.“ Að hugsa sér, hvað þetta ákvæði mundi skapa mikið skrifstofubákn, að raforkuver, sem selja raforku um allt land, eigi að fara að senda eftirlitinu tilkynningar um það, hvað mikið þau selja hverjum aðila. Hvað þarf marga menn til þess að vinna úr þessu? Það þarf fleiri hundruð manns. Það er dæmalaust, að nokkrir menn skuli hafa fengizt til þess að samþykkja aðra eins fjarstæðu og þessi málsgr. er.
15. gr. höfum við ekki lagt til að verði felld niður. Það er nýtt fyrirmæli, að það skuli vera sérstakur sjúkraútbúnaður á hverjum vinnustað. Það þykir sjálfsagt að hafa þar sérstök sjúkralyf og sjúkratæki, og ég tel alveg sjálfsagt að halda því, því að það er nauðsynlegt.
Hins vegar ætlumst við til, að 16. gr. falli niður. Ég skal aðeins lesa síðustu málsgr., en hún hljóðar svo: „Eigi má nota hanzka, vettlinga eða annað þess háttar við vörzlu véla, ef það kann að auka slysahættu.“ Vita ekki þessir menn, að unga kynslóðin snertir ekki á nokkru handtaki nema með vettlingum? Svona mikið eru þessir ágætu menn inni í atvinnulífinu. — Það segir í einni málsgr., að ekki megi smyrja vél, sem er í gangi, ef það sé einhver sérstök hætta. Það er vitað um allan þann flota, sem siglir um höfin, að það verður að smyrja allar vélar meðan þær eru í gangi á sjónum, og engum dettur í hug, að það megi ekki smyrja vél, sem er í gangi. Þessi gr. er slík fjarstæða, að það er undravert, að það skuli finnast menn, sem vilja setja slíkt í l. — Sama er að segja um 17. gr., þar er fyrst ákvæði um, að ekki megi gera þessa og þessa hluti, og síðan er ákvæði um, að það megi, ef það er nauðsynlegt. En ef nokkuð af þessu er nauðsynlegt, þá er það reglugerðarákvæði. — Sama er að segja um síðustu málsgr. 17. gr. Þar segir, að það eigi að vera maður eða menn á vinnustað, er hafi þekkingu á vélum og tækjum, sem á vinnustað eru, en það er alveg sjálfsagt. Það er undir vinnulöggjöfinni, að þessara véla mega ekki gæta nema menn, sem hafa þekkingu á þeim. — Sama er að segja um 18. gr., það er reglugerðarákvæði, þó að ekki skaði, að hún verði látin haldast.
Við leggjum til, að 21. gr. sé felld niður, þ.e. um gæzlu gufukatla, það teljum við heyra undir iðnlöggjöfina, enda er þessi gr. þannig orðuð, að hér er ekki neitt hald í, hér eru sífelldar undanþágur, og er eðlilegt, að þetta heyrí undir atvinnulöggjöfina. Við leggjum þó til, að þessi gr. verði orðuð svo: „Ráðherra setur, að fengnum till. frá forstjóra véla- og verksmiðjueftirlitsins, reglugerð um skilyrði fyrir réttindum til gæzlu eimkatla og suðukatla. Menn með vélstjóraréttindum skulu þó jafnan hafa rétt til að gæta slíkra áhalda.“ M.ö.o., ef þetta eru menn, sem hafa ekki réttindi samkvæmt atvinnulöggjöfinni, þá skuli þetta sett með reglugerð.
Síðan leggjum við til í 14. till., að síðari málsgr. 23. gr. falli niður, þ.e. um fermingu og affermingu skipa. Skal ég gera nokkra grein fyrir því, því að þetta er veigamikið atriði, og eins og ég tók fram á síðasta fundi, þá eru það einmitt þessi atriði, sem hafa orðið þess valdandi, að tafizt hefur að semja nýja löggjöf um þessi efni. En síðari málsgr. 23. gr. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Um fermingu og affermingu skipa gilda eftirfarandi sérstök ákvæði: Á flutningsstykki, sem eru 1000 kg að þyngd með umbúðum eða meira og fermd eru í íslenzkri höfn, skal þunginn vera greinilega merktur og þannig, að merkingin máist ekki hrátt af. Sé ómögulegt eða illgerlegt að ákveða þungann nákvæmlega, getur öryggiseftirlitið leyft, að ágizkaður þunginn sé merktur á umbúðirnar. Að öðru leyti setur ráðherra reglur um fermingu og affermingu skipa í samræmi við ákvæði þessara laga.“
Ef á að hafa raunverulegt eftirlit, sem gagn er að, í sambandi við upp- og útskipun, þá er sýnilegt, að þetta verður ekki annað en pappírsgagn, ef ekki eru settir um borð 1–2 eftirlitsmenn, meðan umskipun fer fram, og sérstaklega að viðkomandi aðili hafi eftirlit með því, að ekki sé látinn í vírana, sem draga eiga byrðina upp, meiri þungi en vírarnir eru merktir fyrir eða útleggjararnir. En hvað kemur það til með að kosta þjóðina að hafa 1–2 eftirlitsmenn í hverju skipi um allt land? Þetta er ekkert annað en hrein fjarstæða, og það er heldur ekkert öryggi fyrir því, að slys, sem hafa orðið í sambandi við þetta, verði útilokuð, þó að þetta sé gert. Hitt er svo vitað, að skipaeftirlitinu ber skylda til að sjá um, að allir vírar og öll tæki, sem notuð eru í skipunum, séu í því ástandi, sem á að vera, og ég tel óheppilegt, að annað eftirlit sé að skipta sér af því. Þess vegna höfum við lagt til, að þessi málsgr. falli niður.
15. till. okkar er við 25. gr., um að gr. fa?li niður, en hún hljóðar svo:
„Ef eigi er hægt að veita verkamönnum nægilega vernd gegn slysum eða sjúkdómum með öðrum hætti, skal gera sérstakar öryggisráðstafanir, þar sem því verður við komið, t.d. nota hentugasta fatnað, öryggisbelti eða hlífðarútbúnað þann, sem nefndur er í 21. tölul. 12. greinar. — Verkamenn eru skyldir að nota þann öryggisútbúnað, sem nefndur er í 1. málsgrein þessarar greinar, þegar þeir þarfnast hans við vinnu sína.“
Þetta teljum við vera reglugerðarákvæði og samningsatriði vinnuveitenda og vinnuþiggjenda á hverjum tíma.
16. brtt. er við V. kafla, að sá kafli, 28.–30. gr., falli niður, en hann er um lágmarkshvíldartíma verkamanna. Þar er ákveðið með l., hvað marga tíma á sólarhring þessir menn skuli vinna, og sjáum við ekki ástæðu til að setja það inn í l., nema það verði almennt tekið upp í landinu, hvað menn eigi að hafa langan vinnutíma, því að það er venjulega tekið upp í samninga við verkalýðsfélög; þess vegna leggjum við til, að þessi kafli sé felldur niður.
Þá leggjum við til í 17. brtt., að 31. gr. orðist svo: „Eftirlit með því, að ákvæðum laga þessara og reglugerða settra samkvæmt þeim sé framfylgt, hefur véla- og verksmiðjueftirlit ríkisins. Ráðherra setur eftirlitinu starfsreglur og ákveður starfsmenn þess.“ Það er nú gert ráð fyrir því, að það sé, eins og hér er tekið fram, öryggiseftirlit og öryggismálastjóri. Við höfum áður lagt til, að það falli niður, og er þetta afleiðing af því, ef það yrði samþ.
18. till., við 32. gr., er sú, að greinin orðist svo: „Forstjóri véla- og verksmiðjueftirlitsins hefur samráð við hlutaðeigandi héraðslækni, tryggingalækni Tryggingastofnunarinnar og berklalækni í öllum málum, er snerta heilbrigði verkamanna. Fastráðnir starfsmenu véla- og verksmiðjueftirlitsins skulu hafa störfin sem aðalstörf og mega ekki taka að sér önnur störf, er ætla má að komi í bága við aðalstarfið.“
Seinni málsl. er settur inn til þess að útiloka, að þessir starfsmenn taki að sér önnur störf sem aukastarf, en í fyrri liðnum er gert ráð fyrir, að lækniseftirlit sé í samráði við þá aðila, sem starfa að lækniseftirliti, og að þeir geti einnig haft þetta sem skyldu, að skoða menn á vinnustöðum, ef það þykir ástæða til. Þar af leiðandi er ekki þörf á sérstökum lækni og að stofna nýtt embætti eins og gert er ráð fyrir í l., því að það er gert ráð fyrir, að trúnaðarlæknir öryggiseftirlitsins sé kennari við Háskóla Íslands með því að starfa sem fastur starfsmaður hjá eftirlitinu.
Þá leggjum við til í 19. till., að 33. gr. falli niður, en hún hljóðar þannig: „Öryggismálastjóri og öryggiseftirlitsmaður skulu vera véla eða efnafræðingar, en skoðunarmenn skulu færa sönnur á, að þeir hafi nægilega þekkingu að dómi öryggismálastjóra. — Ákvæði 1. málsgr. þessarar gr. koma þó ekki til framkvæmda að því er snertir núverandi starfsmenn véla- og verksmiðjueftirlitsins.“ Þetta er afleiðing af þeirri breyt., sem við ætlumst til að sé gerð á 32. gr.
Þá er 20. brtt., við 35. gr., a., að orðið „stærri í síðasta málslið fyrri málsgr. falli niður, þ. e., að í staðinn fyrir orðin: „Öll stærri fyrirtæki skulu þó skoðuð a.m.k. einu sinni á ári“ komi: Öll fyrirtæki skulu þó skoðuð a.m.k. einn sinni á ári.
Um 36. gr. er það að segja, að við í minni hl. leggjum til, að hún falli niður. Í stað 2. og 3. málsl. í 45. gr. leggjum við til að komi 3 málsliðir, er orðist svo:
„Þegar að lokinni hinni árlegu skoðun samkvæmt 35. gr. skal gefa út skoðunarvottorð, er gildi í næstu 12 mánuði, enda hafi þá verið bætt úr þeim ágöllum, er kunna að hafa á verið. Skal eigandi þá jafnframt greiða allt skoðunargjaldið. Getur starfsmaður eftirlitsins stöðvað rekstur fyrirtækisins, sé gjaldið eigi greitt, enda afhendi hann þá eigi skoðunarskírteini.“
Hér er um nýmæli að ræða. Nú er þessu þannig háttað, að eftirlitið á að láta bæjarfógeta og sýslumenn annast innheimtuna og hefur það verið innheimt jafnhliða opinberum gjöldum og er lögtakskræft. Það hefur hvað eftir annað verið kvartað undan því, að gjaldið hafi verið innheimt án þess, að skoðun hafi farið fram. Í brtt. okkar í minni hl. leggjum við til, að eftirlitsmenn innheimti gjaldið um leið og þeir afhenda skoðunarvottorðið. Er þetta miklu auðveldara fyrirkomulag, auk þess sem það veitir mikið öryggi. Þetta var mjög til umræðu í sambandi við ákvæðin um skoðun skipa á sínum tíma, en Alþfl. barðist gegn því. En þessari gullnu reglu hefur verið fylgt hjá Lloyds. Forstjórinn fyrir skipaeftirlitinu hér barðist á móti því að taka upp þessa góðu reglu, sennilega af því, að hitt fyrirkomulagið veitti honum miklu þægilegri stöðu, — bara sitja og skrifa reikninga.
Við í minni hl. leggjum einnig til, að 2. mgr. 48. gr. falli niður, en þar segir, að þrátt fyrir ákvæði 1. gr. þessara l. sé ráðherra heimilt, í samráði við öryggismálastjóra, að undanþiggja þá starfsemi eftirlitsgjaldinu, þar sem fimm verkamenn eða færri vinna eða notuð er orka, sem eigi fer fram úr 3 hö., enda sé vinnu þannig háttað, að eftirlit sé miður nauðsynlegt.
Ég hef þá lýst brtt. minni hl. iðnn. Ég hef rætt um allar þessar till. við mann þann, sem stjórnar eftirlitinu, og getur hann fallizt á þær flestar, nema þá er ég talaði um núna síðast. Hann telur einnig rangt að taka kostnaðinn af seljanda, ef nauðsynlegt kann að vera að reyna styrkleika véla og áhalda, sbr. 10. gr. Einnig telur hann óheppilegt að hafa ekki sérstakan lækni og sagði, að það ylti á miklu, að eftirlitið hefði næga starfskrafta. — Ég held svo, að hann hafi ekki gert athugasemdir við fleira, nema hvað hann taldi, að ekki væri rétt að sleppa eftirlitinu með skrifstofufólki. Sagði hann, að það væri svo algengt, að skrifstofustúlkur fengju hryggskekkju.
Ég hef einnig rætt þetta við hv. þm. Hafnf., flm. frv. Mætti hann á fundum hjá iðnn. Hefur hann tjáð mér, að hann teldi frv. einskis virði, ef það yrði samþ. með þessum breyt. Sagði hann, að frv. hefði verið endurskoðað í hv. Nd., en hann taldi það nú ekkert annað en pappírsgagn.
Ég er einnig þeirrar skoðunar, að eins og málinu er nú komið sé heppilegast að afgreiða það með rökst. dagskrá eða vísa því til hæstv. ríkisstj., svo að hægt verði að sýna fram á galla þess og undirbúa það betur. Það hefur ekkert að segja, þótt þetta mál hafi tvisvar verið afgreitt í hv. Nd. Flestir hv. þm. hafa ekki haft tækifæri til að kynna sér málið til hlítar, en farið eingöngu eftir ummælum annarra. Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða málið nánar nú.