21.01.1952
Efri deild: 67. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1187 í B-deild Alþingistíðinda. (1987)

47. mál, öryggisráðstafanir á vinnustöðum

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Þetta frv. varð fyrir nokkrum breyt. við síðustu umr. Voru þá samþ. nokkrar af brtt. hv. þm. Barð., en sumar voru felldar. Ég geri ráð fyrir því, að hv. þm. hafi séð um, að þessar till. féllu inn í lögin og væru fremur til að bæta löggjöfina en spilla. Ég held, að það sé engin hætta á því, að hv. þm. Barð. hafi ekki athugað svo gaumgæfilega l., að þau geti ekki myndað samfellda heild, þótt nokkrar brtt. hans hafi verið felldar. Sé ég ekki ástæðu til að fresta umr. N. hafði tíma til að athuga málið yfir helgina, ef vilji hefði verið fyrir hendi. Ég vil mælast til þess, að hæstv. forseti fresti ekki umr., þar sem það getur valdið örlagaríkri töf á afgreiðslu málsins.