29.10.1951
Efri deild: 21. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1204 í B-deild Alþingistíðinda. (2006)

78. mál, orkuver og orkuveitur

Flm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Mér fannst á síðari hluta ræðu hv. þm., að hann væri ekki fjarri því að vera með frv., ef upplýsingar lægju fyrir frá raforkumálastjóra, að hér væri um að ræða varaaflstöð fyrir væntanlega virkjun Dynjanda. Ég vil benda á, að strengurinn frá Dynjanda yfir fjörðinn til Bíldudals yrði dýrari en það, sem hér er um að ræða. Eftir þessa yfirlýsingu tel ég minni ástæðu til að ræða málið frekar. Iðnn. mun fá álit raforkumálastjóra um málið og í öðru lagi fá staðfestingu þess, sem hann sagði við mig um það, að ekki þyrfti nema einn mann til að gæta stöðvanna. Ég vil benda á, að með þessum framkvæmdum væri ekki aðeins bætt úr aðkallandi nauðsyn, heldur fæst einnig ódýrari raforka en frá Dynjanda, en eftir þeim upplýsingum, sem nú liggja fyrir, bendir allt til, að svo verði. Það er hreint ekki svo lítið atriði, ef þetta fólk fær ódýrara rafmagn en með virkjun Dynjanda. Hins vegar kann svo að vera athugandi með Þverá í Nauteyrarhreppi, hvort það yrði ekki hagkvæmari virkjun en Dynjandi. Ég er síður en svo andvígur því, að hv. þm. beri fram frv. um virkjanir í Vestur-Ísafjarðarsýslu, ef þær eru hagkvæmari fyrir fólkið en virkjun Dynjanda. Hér er ekki um annað en heimild að ræða, og 3. gr. frv. er sett til öryggis fyrir því, að ekki verði farið lengra en eðlilegt er án þess að athuga málið gaumgæfilega.