18.01.1952
Neðri deild: 62. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1206 í B-deild Alþingistíðinda. (2022)
78. mál, orkuver og orkuveitur
Gísli Guðmundsson:
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja brtt. við þetta frv. Er hún á þskj. 543 og er við 1. gr., að þar komi inn heimild til að virkja Sandá í Þistilfirði í allt að 2900 hestafla orkuveri og leggja frá því aðalorkuveitur til Þórshafnar og Raufarhafnar.
Í öðru lagi er brtt. við 2. gr., þar sem lagt er til, að þar til greindar fjárupphæðir verði í samræmi við fyrri brtt. Ég skal taka það strax fram, að ég fellst á það, sem hv. frsm. minntist á, að till. verði teknar aftur til 3. umr.
Það er nú nokkuð langt síðan það mál komst á dagskrá að virkja eitthvert vatnsfall til raforkuframleiðslu fyrir Þórshöfn á Langanesi, en þar er töluvert þorp, sem nú er vaxandi. Hefur komið þar í seinni tíð upp iðnaður, sem þarf á raforku að halda. Það var fyrst í ráði að virkja Fossá, sem er í nágrenni við Þórshöfn, og fóru þess vegna fram vatnsmælingar í þeirri á, en þær sýndu, að vatnsmagnið var ekki nógu stöðugt til þess, að virkjun þar gæti komið að gagni, og var því horfið frá því. Síðan var leitað til raforkumálastjóra um að láta athuga virkjunarmöguleika annars staðar, og niðurstaðan varð sú, eftir að nokkrar athuganir höfðu farið fram á fleiri en einu fallvatni, að sérfræðingar þeir, sem þetta athuguðu, hölluðust að því, að réttast væri að virkja Sandá í Þistilfirði. Hafa síðan verið gerðar áætlanir um þá orku, sem ná mætti úr því fallvatni, og kostnað við virkjunina. Áætlanirnar eru um virkjun í 2000 hestafla, 2300 hestafla og 2900 hestafla orkuveri. Á þessu má sjá, að þarna er hægt að fá allmikla raforku, og þess vegna hefur komið til mála, að lina yrði lögð frá orkuverinu til Raufarhafnar, þ.e.a.s. bæði til Raufarhafnar og Þórshafnar. Að vísu er leiðin til Raufarhafnar allmiklu lengri en til Þórshafnar, og þess vegna kann þetta að orka tvímælis, en þó er það svo, að ég tel sjálfsagt, að heimildin nái einnig til orkuveitu til Raufarhafnar. Hef ég því í till. lagt til, að heimildin verði miðuð við stærstu virkjunina, sem áætluð hefur verið, og geri ég það með það fyrir augum, að hægt sé að leggja línur til beggja þorpanna, enda má gera ráð fyrir, að þau hafi möguleika til að hagnýta mikið af þessu orkumagni. Auk þess er rétt að hafa hliðsjón af því, að þarna eiga í hlut allfjölmennar sveitir, sem munu líka hafa hug á að fá rafmagn frá þessari veitu.
Þessar upplýsingar tel ég nægja til að skýra brtt. En ég skal geta þess að lokum, að kostnaðaráætlunin er ekki alveg ný, heldur rúmlega árs gömul, þannig að hún kynni að verða eitthvað hærri nú, ef endurnýjuð væri. Ég taldi þó ekki ástæðu til að taka aðrar tölur upp hér. Nánari upplýsingar mun alltaf vera hægt að fá frá raforkumálaskrifstofunni. Ekki mun heldur mega við því búast, að úr framkvæmdum verði á þessu ári, og munu því kostnaðartölur hvort sem er breytast nokkuð frá því, sem þær kynnu að verða áætlaðar nú.
Ég vil svo mega vænta þess, að hv. þm. veiti þessu máli athygli og geti fallizt á, að þessar virkjanir verði heimilaðar ásamt öðrum virkjunum, sem gert er ráð fyrir í frv. Till. tek ég svo aftur til 3. umr., eins og óskað hefur verið eftir.