22.01.1952
Efri deild: 68. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1210 í B-deild Alþingistíðinda. (2034)

78. mál, orkuver og orkuveitur

Landbrh. (Hermann Jónasson):

Ég vildi, áður en þetta frv. er samþ., enn vekja athygli á því, að þótt þessi orkuver verði samþ., þá er nú fyrst og fremst eftir að gera fullnaðaráætlanir um sum þeirra, eins og kemur fram í frv. Í annan stað er nauðsynlegt að taka fram, að þessar virkjanir eru óhugsanlegar í framkvæmd, án þess að takist að fá erlent lánsfé. Málum er þannig komið nú, að með því fé, sem Alþ. ætlar til virkjana nú á þessu ári og næsta, tekst naumast eða ekki að framkvæma þær veitur, sem þegar eru ákveðnar, og því er nauðsynlegt, ef á að hrinda þessu í framkvæmd með jafnmiklum hraða og hv. þm. hafa áhuga á, að útvega lánsfé til framkvæmdanna.

Ég vil vekja athygli á því, að í 8. lið 1. gr. er gert ráð fyrir háspennulínu um visst svæði, sem þar er tiltekið. Eins er um 7. lið. Það má til sanns vegar færa, að ekki sé óeðlilegt að ákveða þetta í lögum að því er varðar Vestmannaeyjar, þar sem þar er ekki um vatnsorkuveitu að ræða, en með 8. liðnum er farið inn á nýtt svið. Nú er það þannig, að raforkuráð gerir till. um, hvar og hvenær rafmagnsveltur eru gerðar, en síðar eru þessar till. sendar ráðh., sem ákveður, í hvaða röð þær eru framkvæmdar. Ég tel eðlilegt, að till. raforkuráðs, sem í eru sérfróðir menn, sé fylgt í aðalatriðum, enda hef ég ekki vikið frá till. þess nema í tveimur atriðum, er bætt var við Skagafirði og Borgarfirði, en á báðum þessum stöðum voru orkuver, en vantaði veitur. Hins vegar voru teknar þær veitur, sem raforkuráð hafði samþ. Þetta skiptir þó ekki verulegu máli, því að í frv. er gert ráð fyrir því, að það sé á valdi ríkisstj., í hvaða röð þessar framkvæmdir séu gerðar, þótt lög frá Alþ. séu að vísu bending um framkvæmdirnar.