07.01.1952
Efri deild: 55. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1220 í B-deild Alþingistíðinda. (2052)
134. mál, girðingalög
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Ég skal ekki segja, hvað n. yfirleitt segir um þetta atriði eða form. hennar, hinn ágæti hv. 1. þm. N-M. (PZ), svo að ég taki mér í munn orð hæstv. dómsmrh. En mér virðist ekki beint nauðsyn að fresta þessu máli vegna þessa, þar sem maður hefur hér í hv. d. hinn æruverða og ágæta fyrrverandi borgarstjóra, sem mundi ekki vera lengi að skjóta á einni smábrtt. í þessu efni, svo að eins vel færi úr hendi og þótt Samband sveitarfélaga, sem í eru um 300 sveitarstjórnir úti um allt land, fengi málið til umsagnar. Að vísu þarf ekki að senda til þeirra, sem ekki hafa þorp í sínum hreppi, en það mundu verða svona milli 50 og 100 sveitarstjórnir, sem þyrfti að leita umsagnar hjá. En úr því að búið er að spá, að þetta frv. nái ekki fram að ganga á þessu þingi, þá held ég sé réttast að lofa því að fara til 3. umr., en þangað til má alltaf athuga brtt., ef hæstv. ráðh. þóknast ekki að bera hana fram strax. Annars getur hv. form. n., ef honum sýnist eitthvað athugavert við það, sem ég segi, svarað fyrir hönd nefndarinnar.