10.01.1952
Efri deild: 56. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1223 í B-deild Alþingistíðinda. (2058)
134. mál, girðingalög
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Herra forseti. Það sýnir sig, að hæstv. forseti álítur ekkert myrkraverk vera hér á ferðinni, þar sem honum þótti viðeigandi, að þetta mál væri tekið fyrir nú, er ljósin eru komin, enda er það svo, að hér er ekkert, sem ekki má koma fram í ljósið. Yfirleitt er búið að ræða þetta mál nokkuð ýtarlega, og einnig er búið að ræða breyt. á þskj. 560 við 2. umr. N. gat fallizt á að verða við óskum dómsmrh. um að breyta 4. gr. þannig, að ekki yrði lögboðin þátttaka bæjar- eða sveitarfélags í girðingum um lóðir meðfram vegi. Við höfum horfið frá því að gera þetta að skyldu sveitarfélaga, en aftur á móti er haldið eftir girðingarskyldu á milli byggingarlóða eða ræktunarlanda í þorpum, en það er nú tekið skýrt fram, að hér sé aðeins átt við vírgirðingar, gaddavírsgirðingar og vírnetsgirðingar. Virðist mönnum þá ekki vera íþyngt um of með þessum ákvæðum, þótt þeir leggi eitthvað frá sinni hendi til slíkra girðinga, enda eru girðingarnar ódýrar samanborið við lóðirnar. Nú eru hér í frv. engin skýr ákvæði um það, hvernig fer með þær lóðir, sem ekki eru ákveðið ætlaðar til ræktunar eða byggingar, hvort girðingarskyldan hvílir á eigendum slíkra lóða. Hv. þm. S–Þ. (KK) mun koma fram með brtt. um þetta, og hefur hann sýnt okkur nm. hana, og er hún á þá leið, að það hvílir ekki girðingarskylda á eigendum þeirra lóða, sem ekki hafa verið mældar út til ræktunar eða byggingar.
2. brtt. okkar á þskj. 560 er raunar aðeins til að færa gr. til betra máls. Efni gr. verður alveg það sama eftir sem áður, og er því ekki ástæða til að fara fleiri orðum um þá brtt. En ef þessar Brtt. ásamt brtt. hv. þm. S-Þ. yrðu samþ., held ég, að ekki verði gengið á hlut bæjar- og sveitarfélaga í þessu máli og að þau megi sæmilega við una.
Ég vil að lokum taka fram, að það færi betur á að breyta einu orði í 9. gr., og má skoða það sem prentvillu, en þar stendur „vegeiganda“, en ætti að vera vegareiganda. Ég álít þó ekki rangt að segja „vegeiganda“, en hitt færi betur, að segja „vegareiganda“, og kannske hefði farið bezt á að segja „eiganda vegar“. En þetta vildi ég biðja hæstv. forseta vorn að athuga og leiðrétta sem prentvillu. — Hv. þm. S-Þ. mun gera nánari grein fyrir brtt. sinni, og sé ég ekki ástæðu til að hafa um hana fleiri orð, en vona, að allar þessar brtt. verði samþykktar.