21.01.1952
Neðri deild: 65. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1226 í B-deild Alþingistíðinda. (2074)
134. mál, girðingalög
Forseti (SB):
Mér hefur borizt brtt. frá hv. landbn. við 4. gr. frv., svo hljóðandi: „Orðin „byggingarlóða eða“ í 1. málslið og orðin „byggingar- eða“ í 2. málslið falli niður.“
Brtt. er skrifleg og of seint fram komin, og þarf því tvöfaldra afbrigða við.