22.01.1952
Efri deild: 68. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1226 í B-deild Alþingistíðinda. (2078)
134. mál, girðingalög
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Á frv. þessu hefur sáralítil breyt. verið gerð í Nd. Það er í fyrsta lagi um að ræða skýrari ákvæði um grindur í hliðum og í öðru lagi — sem hefur verið gert eftir ósk bæjarstjórnar Reykjavíkur — nánari ákvæði um skyldu til samgirðingar um byggingarlóðir og ræktunarlönd. Ég sé ekki ástæðu til að fara frekar út í þetta, en við viljum leggja til, að frv. sé samþ. eins og það kom frá Nd.