21.01.1952
Neðri deild: 66. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1234 í B-deild Alþingistíðinda. (2130)

162. mál, gjald af kvikmyndasýningum

Frsm. meiri hl. (Jóhann Hafstein):

Mér finnst tilefni til að leiðrétta nokkur atriði 1 ræðu hv: þm. Siglf. Hann rökstuddi andstöðu sína gegn þessu frv. með því, að með þessu væri verið að leggja á nýjan skatt. Ef svo væri, þá mundi málið vissulega líta öðruvísi út, en hér er ekki þessu til að dreifa. Þessi skattur hefur verið innheimtur undanfarin ár, og er hér aðeins um það að ræða að fá nú alveg tvímælalausa heimild til þessarar innheimtu. Ef þessi skattur verður ekki innheimtur, skipta eigendur kvikmyndahúsanna þessum 450 þús. kr. á milli sin. Spurningin í dag er sú, hvort bæjarsjóður eða kvikmyndahúsaeigendur eigi rétt til þessa fjár. Ég vil því biðja hv. þm. að gera sér vel grein fyrir því, að hér er alls ekki verið að leggja nýjan skatt á kvikmyndahúsin. Það var ekki fyrr en nú um áramótin, sem eigendur kvikmyndahúsanna sögðu upp samkomulagi því, sem verið hefur milli þeirra og bæjarins um, að kvikmyndahúsin greiddu þennan skatt. Er því um annaðhvort að gera nú, að fella niður þessa upphæð á fjárhagsáætlun bæjarins eða að freista þess að fá þetta lögleitt.

Þetta mál horfir alveg sérstaklega við frá sjónarmiði bæjarins. Það er til heimild frá 1918 um skemmtanaskatt, sem bæjarsjóður mundi bera fyrir sig til að ná þessum skatti, en eðlilegra og ódýrara virðist, að þessi leið sé farin, svo að komast megi hjá langdregnum og kostnaðarmiklum málaferlum.

Varðandi þetta gjald annars staðar er það að segja, að afstaða er mismunandi eftir því, hvort skemmtanaskattur er greiddur eða ekki, en það er aðeins í bæjum með yfir 1500 íbúa. En ég held, að það sé víðast, að þessi skattur sé ekki innheimtur, en þó mun það t.d. vera svo á Akureyri. Annars staðar er það ýmislegt annað, sem veldur, t.d., að bæjarsjóðir reka kvikmyndahúsin sums staðar sjálfir eða þau eru rekin í þágu málefna, sem eru undanþegin skemmtanaskatti. Er ekki ástæða til að blanda því inn í þetta mál. Aðalatriðið er það, að hér er ekki verið að leggja nýjan skatt á, heldur aðeins verið að staðfesta eldri heimild til þessarar innheimtu.