21.01.1952
Neðri deild: 66. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1235 í B-deild Alþingistíðinda. (2131)

162. mál, gjald af kvikmyndasýningum

Áki Jakobsson:

Herra forseti. Ég benti á það í fyrri ræðu minni, að gjald það, er Reykjavíkurbær hefur innheimt og hér er rætt um, eigi sér langa sögu. Mér skilst, að þeir, sem bíóin ráku, hafi í upphafi haft til þess einkaleyfi, og var þetta þá öruggur gróðavegur. Þess vegna var þetta gjald þá eins konar greiðsla fyrir þá aðstöðu, sem bærinn lét bíóunum í té. Hins vegar hafa þau nú sagt upp þessu samkomulagi, en vegna þess, að bæjarfélagið telur sig ekki hafa örugga heimild til innheimtunnar, er þetta frv. flutt. Ég veit ekki, hvort bæjarstjórnin getur framfylgt þessari álagningu, ef frv. verður ekki samþ. Ég gat ekki verið á fundi allshn. með bíóeigendum, en mér skilst, að það hafi ekki komið fram, að þeir hafi verið með 450 þús. kr. í vasanum, heldur yrði miðaverðið að hækka, ef þetta yrði innheimt. Mér er ekki kunnugt, hvers vegna þetta gjald er lagt á, en ég held þó, að þessi bíóskattur sé einstæður hér í Reykjavík, því að þrátt fyrir öll lagaákvæði held ég, að þessi greiðsla hafi byggzt á gamalli venju, — já, allt frá því er Nýja Bíó kom fyrst hér upp.

Þegar litið er á málið í heild, er um það að ræða, að verið er að leggja nýjan almennan skatt á kvikmyndasýningar um land allt. Mér virðist dálítið einkennilegt að koma með þetta frv. í lok þingsins og leggja allt þetta ofurkapp á að koma því í gegn. Það getur verið rétt, að þetta sé nauðsynlegt fyrir Reykjavíkurbæ, en þetta er í raun og framkvæmd almennur skattur, sem lagður verður á allar sýningar í landinu, og ég er hræddur um, að gengið verði lengra í þessu en góðu hófi gegnir. Mér finnst þetta skattæði svo mikið orðið, að einhvers staðar verði að spyrna við fótum. Það er orðið svo, að það getur enginn maður stigið fæti nokkurs staðar, án þess að greiða fyrir það fleiri eða færri skatta, og ég tel alveg óverjandi að fara að leggja nýja skatta á þessa almennustu og ódýrustu skemmtun almennings og þá einu, sem margír geta veitt sér.