21.01.1952
Neðri deild: 66. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1236 í B-deild Alþingistíðinda. (2133)

162. mál, gjald af kvikmyndasýningum

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það fjölgar sífellt þeim málum í þinginu, þar sem verið er að leggja á nýja skatta og gjöld á menn og veita sveitarfélögum heimild til nýrra álagna. Hv. d. hefur verið óspör á að gefa slíkar heimildir til sveitarfélaganna. Það er vitað, að erfiðleikar sveitarfélaganna eru miklir, og er nú aðferðin sú, að fram kemur hvert frv. á fætur öðru, sem fer fram á heimild til að leggja á ný gjöld. Bæjarstjórnirnar sækja nú svo skarpt á, að aðhaldið verður að koma beint frá Alþ. Það má segja, að varla sé hægt að lá neinum bæjarfulltrúa, þótt hann óski eftir þessum heimildum. Ég er t.d. alveg viss um það, að ef bæjarstjórn væri boðinn hluti af söluskattinum, mundi hún taka því boði fegins hendi, jafnvel þótt hún yrði þá að sleppa kvikmyndahúsagjaldinu. Spurningin er ekki um það, hvort bíóeigendur eigi að greiða þessa upphæð, heldur hvort eigi að loka bíóunum vegna þess, að almenningur hefur ekki efni á þessum skemmtunum. Sýningar að degi til, sem voru ódýrari, eru að leggjast niður, en kvöldsýningar fyrir hálftómu húsi. Ég efast ekki um, að gjald þetta verði lagt á aðgöngumiðana, þar sem eigendur kvikmyndahúsanna telja sig ekki hafa efni á því. Ég álít það fullkomlega athugandi, hvort ekki væri réttara að veita bæjarstjórninni heimild til að taka ákveðið gjald af hverri brennivínsflösku eða aðgöngumiða að dansleikjum í bænum. Ég býst við, að réttlátara væri að leggja á flöskurnar, og þar að auki mundu bæjarstjórnir úti um land taka þetta sér til fyrirmyndar. Það er sama, hvaða tekjuöflunaraðferð bent er á, ástandið er þannig, að sveitarfélögin eru neydd til að stinga höndinni sífellt dýpra og dýpra niður í vasa borgaranna. Það er út frá þessu sjónarmiði, að við, sem höfum verið með því, að hluti af söluskattinum fari til bæjarfélaganna, erum á móti þessu gjaldi.