21.01.1952
Neðri deild: 67. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1238 í B-deild Alþingistíðinda. (2139)
162. mál, gjald af kvikmyndasýningum
Áki Jakobsson:
Herra forseti. Út af síðustu ræðu hv. 5. þm. Reykv. við 2. umr. sá ég sérstaka ástæðu til að halda umr. áfram, þó að ég hafi annars ekki ætlað mér það. Hann byrjaði ræðu sina á því að slá því föstu, að ég félli frá öllu, sem ég hafði sagt um þetta mál. Það var ekki nema eðlilegt, að ég endurtók ekki það, sem ég hafði sagt við hann í fyrri ræðu minni, þar sem hann talaði ekki á milli, og hafði ég því engu frekara að mótmæla honum, þó að það hafi verið ástæða til að endurtaka það.
En eitt atriði er það í ræðu hv. 7. þm. Reykv., sem ég vildi svara. Hann benti á í upphafi ræðu sinnar, að þetta væri sérstakt og eðlilegt gjald, sem bæjarsjóður Reykjavíkur hefði tekið af kvikmyndasýningum, og ætti þetta gjald sér sjálfstæða sögu. Ég benti á, og því var ekki mótmælt, að þetta gjald væri þannig til komið, að bæjarsjóður hefði tekið þetta gjald fyrir að veita mönnum leyfi til að reka kvikmyndahús. Voru þá kvikmyndahúsin tvö, og töldu eigendur þeirra ekki aðeins hyggilegt, heldur líka sjálfsagt að greiða bæjarsjóði eitthvað fyrir þau fríðindi, sem þeir töldu sig hafa, þegar þeir fengu að reka kvikmyndahús. Þannig er þetta sætagjald til komið. Nú hefur kvikmyndahúsunum fjölgað, og hefur aðsókn minnkað, þannig að vaxandi atvinnuleysi, stórhækkað verðlag og aukin útgjöld og skattar almennings hafa komið hastarlega niður á þeim. Er nú svo komið, að þeir menn, sem töldu sig hafa höndlað hnossið, er þeir fengu leyfi til kvikmyndahúsrekstrar, telja nú þetta hnoss síður en svo gróðavænlegt og geta ekki borgað stórar fúlgur fyrir. Eitt kvikmyndahúsanna, Tjarnarbíó, hefur sérstakan sjóð og hefur því haft forustuna. En ég vil benda á, að það eru ekki aðrir, sem hafa þessa peninga, og er útilokað, að þeir geti greitt þessa skatta án þess að hækka verð á aðgöngumiðunum.
Það er ekki langt síðan við höfðum hér með höndum mál um fasteignaskatt. Hefði verið eðlilegt, að þeir hv. 5. og 7. þm. Reykv. hefðu farið fram á, að bæjarsjóður fengi skatt af kvikmyndahúsunum, þannig að ekki þyrfti að hækka miðaverðið og ríkissjóður slakaði til á sinni kló. En við þessu var ekki hreyft, þegar málið var til umr. Nei, þetta er ekki gert til annars en að tryggja, að kvikmyndahúsin verði gerð að sérstökum tekjustofnum fyrir bæjarfélögin, og geta kannske seinna verið stoltir af að hafa gert þetta að sérstökum skatti. Mundi hækkað verð aðgöngumiða valda því, að almenningur, sem hefur þetta fyrir sína beztu skemmtun, verður að neita sér um að sækja þessar skemmtanir, enda fullyrtu fulltrúarnir, sem komu fyrir n., að ef verð aðgöngumiða hækkaði, mundu bæjarbúar minnka við sig að sækja kvikmyndasýningar og væri alveg óvíst um, hvort þessi skattur þyrfti ekki að fara hærra en í 10%. Munar hann 40–50 aurum á miða. Og ef þessi skattur verður til þess að draga úr aðsókn, þá getur hann vel farið upp í 1 krónu á miða, því að ekkert hámark er á bíómiðum. Ég tel þetta rangláta og ósanngjarna skattálagningu, en ef bæjarstjórn telur hana nauðsynlega fyrir sig, er sjálfsagt að athuga málið. En þegar á að leggja þetta á sem almennt gjald og tekjustofn fyrir bæjarfélögin, væri eðlilegra, að þingið krefðist þess, að athuguð væru þau rök, sem að málinu liggja. Ég vil benda hv. 5. þm. Reykv. á, að hann hefur verið ófróður í þessu tilliti. Sennilega hefur hann ekki samið þetta frv. og veit því ekki um þau rök, sem stjórn Reykjavíkurbæjar kemur með fyrir því, og getur ekki nefnt nein rök önnur en þau: Af hverju á Reykjavík að víkja? — Ég vil benda hv. 5. þm. Reykv. á, að ekki hefur verið gerð tilraun til að víkja í skattaálagningu í þessu efni. Það virðist gleymt, að sá verður að vægja, sem vitið hefur meira. Það virðist sem ætlazt sé til, að bæjarstjórn Reykjavíkur viki nú og af reynslunni sé borið slíkt traust til hennar. Þetta verður svo óveruleg upphæð, að hún getur ekki munað bæjarsjóð neinn, en það yrði tilfinnanlegt, ef verð aðgöngumiða hækkaði. Hvernig sem hv. 5. og 7. þm. Reykv. reyna að snúa þessu, þá er hér verið að leggja nýjan skatt á kvikmyndasýningar. Ef þetta frv. verður að lögum, verður aðgangseyrir hækkaður, til þess að Reykjavíkurbær geti fengið þessi gjöld, og þá koma aðrir bæir í sömu slóð. Verður þá erfitt fyrir allan almenning að veita sér þá ódýru skemmtun, sem kvikmyndasýningar hafa verið.