23.01.1952
Efri deild: 69. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1243 í B-deild Alþingistíðinda. (2155)

162. mál, gjald af kvikmyndasýningum

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Þegar hæstv. dómsmrh. reifaði þetta mál, taldi hann, að ekki væri verið að leggja á nýjan skatt. En í 1. gr. frv. er ekki aðeins heimild fyrir bæjarstjórn Reykjavíkur til að innheimta þetta 10% gjald, heldur fyrir allar sveitarstjórnir. Forstjóri eins kvikmyndahúss sagði, að flest bíó úti á landi yrðu að loka, ef þetta yrði samþ. Ekki er vafasamt, að sveitarfélögin yrðu að nota þessa heimild í neyð sinni. Ég vil því, að þetta frv. verði fellt og á þeim stöðum, þar sem þetta hefur verið innheimt áður, verði það gert eftir öðrum leiðum. Enn fremur, ef til þess kemur, að frv. verði samþ., yrði að undanþiggja þessu gjaldi íslenzkar kvikmyndir og fræðslukvikmyndir. Ég mun því ef til vill bera fram brtt. um þetta, ef ekki verður unnt að fella frv.