04.12.1951
Efri deild: 37. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1281 í B-deild Alþingistíðinda. (2190)
109. mál, skipun prestakalla
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég lýsti því við 1. umr., að ég væri alveg mótfallinn því frv., sem hér liggur fyrir, og aðalástæðan væri sú, að ég teldi, að með því að fækka svo mjög prestum í sveitum landsins sem gert er í frv., þá væri gerð bein tilraun til þess að flytja fólkið til frá sveitunum í kaupstaði eða þorp, eða þar sem fjölgun er fyrir. Það er ekki einasta, að með þessu frv. yrði tekin þessi tala presta frá þessum héruðum, heldur yrði tekin jafnhá tala kennara, þar sem settir eru kennsluprestar, en áður hafa verið bæði prestar og kennarar. Ég veit ekki, hvort hv. menntmn. hefur athugað þetta atriði, en sýnt er, að hér er höggvið tvisvar sinnum í sama knérunn. Ég tel það meira virði fyrir þjóðina, að hægt sé að halda menntamönnum í dreifbýlinu í samvinnu við fólkið, en það fé, sem við það sparast að fækka embættum, eins og hér er lagt til, og af þeim ástæðum er ég algerlega á móti þessu frv. eins og það liggur fyrir. Ég sé einnig, að sparnaður við frv. er raunverulega enginn, þar sem prestaköllunum er haldið í frv., og þessi röskun mundi hafa það í för með sér, að stórkostlegar kröfur kæmu á hendur ríkissjóði á næstu árum um að byggja upp nýja prestsbústaði á þeim stöðum, þar sem prestum er fjölgað, og á þeim stöðum kosta prestsbústaðir meiri peninga en í sveitum, t. d. í Reykjavík, og það mundi enn skapa það ástand, að gengið væri á rétt sveitanna. Ég man, þegar frv. var hér til umræðu fyrir nokkru síðan þess efnis, hvar fyrst ætti að byggja prestsbústaði, að ég gerði till. um það, að látið yrði ganga fyrir að byggja þá á jörðum ríkisins úti á landi, en sú till. var felld, og þess vegna hefur mestu af því fé, sem veitt hefur verið til byggingar prestsbústaða, verið varið til þess að koma upp slíkum bústöðum hér í Reykjavík og í þéttbýlinu. Ég tel, að þetta sé að fara í öfuga átt og sé, mjög vanhugsað af þeim mönnum, sem að þessu máli standa, og liggur annað á bak við en til er ætlazt, enda ber frv. það með sér, og þær till., sem koma frá 1. þm. N-M., bera það beinlínis með sér, að það liggur sýnilega annað á bak við málið en uppi er látið. Það er nú þjóðkunnugt, að því meiri fávizka sem ríkir í héruðunum, því meiri völdum nær Framsfl., eftir því sem upplýsingastarfsemin er minni, og það er þetta, sem er höfuðástæðan fyrir því, að kirkjumálaráðh., 1. þm. N-M. og form. mþn. fara svona með þessi mál. En hitt er líka sýnilegt, að hér eru ákveðnir menn að reyna að ná tökum á tekjum ríkissjóðs, sem þeir gætu farið með eftir sinni vild, sbr. þau mörgu prestsseturshús, sem hér eru lögð niður og heimilað að selja úr eigu ríkisins. Það er þess vegna annað en umhyggja fyrir kirkjumálum landsins, sem liggur hér á bak við.
Ég skal svo snúa mér að hinu, þ. e. meðferð málsins í hv. menntmn. Raunar hafði menntmn. gert það fyrir ráðh. að flytja frv., en það var þegar vitað, að n. var ekki sammála um málið, og þess vegna var því vísað aftur til hennar og sýnilegt, að þegar málið kemur úr n. nú, er hún jafnklofin og þegar hún flutti málið, en samt þorir enginn nm. að skrifa nál. í þessu stóra máli, og gögnin, sem n. hafa borizt, eru ekki einu sinni látin opinberlega fram fyrir þm., svo að þeir geti séð þau og gagnrýnt, heldur er þeim bara stungið undir stól, en heyrzt hefur á form. n., að ýmis gögn hafi komið til hennar í sambandi við þetta mál, en þau mega þm. ekki sjá, og er ég hræddur um, að slíkt geti ekki talizt sæmilegt. Hv. n. ætlast þó víst ekki til, að tölurnar verði falsaðar, eins og einn nm. falsaði tölur í fjvn.? (HV: Það er ósatt.) Ég geri að minnsta kosti ráð fyrir, að eðlilegast væri, að gögnin væru prentuð hér, svo að hver þm. gæti haft þau fyrir framan sig, í stað þess að láta þau liggja og koma ekki fram. Það er sannarlega ekki til sóma fyrir form. að afgr. málið þannig, að skrifa ekki um það nál., né heldur fyrir neinn nm. að skila því þannig, að n. er jafnmargklofin og það eru margir menn í henni, en ekki einn stafur til upplýsinga í málinu. Er það af því, að þeir þori ekki að láta lesa í útvarpinu afstöðu sína til málsins, því að sé skrifað nál., er það sent út til þjóðarinnar? Það skyldi þó ekki vera, að þeir þyrðu ekki að láta þjóðina vita um afstöðu sína til þessa máls?
Ég skal þá fara nokkrum orðum um frv. sjálft, því að eins og hæstv. forseti minntist á við 1. umr., var ekki ætlazt til, að farið yrði í hverja grein við 1. umr., en nú vildi ég minnast á hinar einstöku greinar.
Það er tekin hér inn í frv. undir rómv. III, þ. e. Austur-Skaftafellsprófastsdæmi, heimild handa kirkjustjórninni til að selja Sandfell og flytja prestssetrið á hentugri stað. Nú er ekki sett inn í frv., hvar sá staður á að vera, og n. hefur ekki getað ákveðið sig um það. Hins vegar er til heildarlöggjöf um sölu kirkjujarða. Mér er nær að halda, að hér sé verið að reyna að búa svo um hnútana, að hægt verði að selja kirkjujarðirnar, sem eru eign ríkisins. Það má vera, að það sé hugsað með svipuðum hætti og salan á Kaldaðarnesinu á sínum tíma, sem fræg er að endemum.
Þá er lagt til í frv., í 1. gr. VI, að Þingvalla-og Úlfljótsvatnssóknir verði sameinaðar með prestssetri að Þingvöllum. Ef málið gengur áfram í gegnum þessa umr., mun ég bera fram brtt. við þennan lið. Ég álít, að á Þingvöllum eigi að vera sérstakt heiðursprestakall, þar sem kristni var lögleidd á Íslandi. Af þeim sökum er viðeigandi, að þeim stað sé sýnd meiri virðing í þessum efnum en öðrum á Íslandi, og mun ég bera fram brtt. við 8. umr. varðandi þetta.
Í 1. gr. VIII er gert ráð fyrir, að í Reykjavíkurprófastsdæmi skuli jafnan vera svo margir prestar, að sem næst 5000 manns komi á hvern. Með þessu fyrirkomulagi er farið inn á allsendis nýjar brautir í þessu máli. Með því móti er sóknunum skipt í 5 þúsund manna sóknir, án þess að Alþingi hafi þar nokkurn hlut um að segja eða samþykki þá skiptingu. Nú hefur hv. 11. landsk. borið fram brtt. við þetta, og mun ég athuga þetta frekar, er ég ræði síðar meir um þetta atriði.
Í lið XVI er gert ráð fyrir, — en á þeim slóðum ætti hæstv. kirkjumrh. að vera kunnugastur, — að Staður í Steingrímsfirði heyri undir prestinn í Hólmavík, ásamt Drangsness-, Kaldrananess- og Kollafjarðarnesssóknum. Þetta er alveg fráleitt og hlýtur að vera ofviða. Þess utan er Árnessókn með prest í Árnesi. Ég held, að það sé erfitt að finna þessu nokkur rök nú. Er það kannske meginorsökin fyrir þessu brölti, að ætlunin sé að selja ábúandanum í Kollafjarðarnesi jörðina? Þetta sér hver maður, að það er ekki hægt fyrir einn prest að þjóna svo stóru umdæmi. Og hversu kunnugur sem hv. 1. þm. N-M. segist vera þessum málum, þá met ég meira þær upplýsingar, sem koma frá þeim mönnum, sem starfað hafa á þessum slóðum árum saman.
Hér er í 2. gr. frv. fjallað um það, hvernig að eigi að fara í Reykjavík á fundum safnaðaráðs, sem koma á í stað sóknarnefnda. Ég skil ekki, af hverju þessarar breytingar er þörf, hvers vegna sóknarnefndirnar starfi ekki áfram sem verið hefur eins og á öðrum stöðum. Safnaðaráðið á þó að fjalla um sömu mál, en á einnig að gera till. um breyt. á sóknum prófastsdæmisins, m. ö. o., það á hér að aka til sóknunum án afskipta Alþingis.
Í 3. gr. segir, að í kaupstöðum utan Reykjavíkur skuli prestar vera það margir, að sem næst 4000 manns komi á hvern prest. Ég held, að ekki beri að samþ. ákvæði um það. Í Hafnarfirði eru nú um 4 þús. íbúar, og eftir því ættu þeir að hafa einn prest. Þessu eiga menn að geta ráðið sjálfir, og því er ég á móti.
Í 5. gr. eru ákvæði um það, að sveitarfélögum kaupstaða og kauptúna sé skylt að leggja til ókeypis lóðir undir kirkjur og prestsseturshús. sem reist verða samkv. l. þessum. Þetta ákvæði er í gildandi l., en sá galli er nú á, t. d. hvað varðar hinn nýja prest hér í Reykjavík, að hann hefur ekki getað fengið úthlutað lóð, sem væri í hans eigin sókn. Eðlilegra væri nú, að prestsseturshúsið væri í þeirri sömu sókn og hann þjónar, en ekki suður í Kópavogi eða suður á Seltjarnarnesi.
Í 6. gr. frv. er talað um prestaköll, þar sem prestarnir skulu jafnframt og þeir þjóna brauði sínu gegna kennarastörfum. Ég er þessu sammála, og tel ég rétt að sameina prestsstarfið og kennslustarfið að nokkru leyti. Slíkt fyrirkomulag gefur prestunum meira starfssvið. Um aldir hafa prestar haft mikil afskipti af kennslu á Íslandi. Hafa þeir lagt mikinn skerf til menntunar landsmanna, og tel ég eðlilegt, að slíkt haldi áfram á þeim stöðum, þar sem það hentar.
Í 7. gr. er gert ráð fyrir, að biskup ráði tvo aðstoðarpresta, sem gegni þjónustu í forföllum sóknarpresta. Ég er andvígur þessu, og ef spara á með þessu frv. og fækka prestum, þá tel ég þetta ekki vera neitt til sparnaðar. Ef verja á fé til þess að kosta tvo aukapresta, þá vil ég heldur setja þá niður á ákveðnum stöðum. Ef brauð losna, þá er eðlilegast að setja þangað unga presta, en engin ástæða til þess að hafa umferðarpresta. Það á ekki að taka prestana frá fólkinu og senda þá um landið. Ég veit, að kirkjustjórninni hefur reynzt erfitt að útvega prest á suma staði, en það er aðeins fyrir það, hversu illa hefur verið að prestunum búið í sveitahéruðunum. Þeir hafa orðið að sætta sig við léleg laun og lélegt húsnæði, og hefur þetta verið notað sem aðalástæða fyrir því, að fækka skuli prestum í dreifbýlinu.
Í 8. gr. er sagt, að andvirði prestssetra þeirra, sem lögð verða niður samkvæmt lögum þessum, skuli verja til húsbygginga og annarra endurbóta á prestssetrum í viðkomandi prestaköllum. Hér er ekkert getið um það, hvort selja eigi jarðirnar hæstbjóðanda.
Fasteignamat á þessum stöðum er varla nema 5–10 þús. kr., og er hætt við því, að þetta verði ekki háar upphæðir.
Samkvæmt 13. gr. frv. er gert ráð fyrir, að þessi lög gildi frá 1. jan. 1952 og falli þá úr gildi lög nr. 37 14. marz 1951, sem taka áttu gildi á sama tíma og þessi lög. Ég bendi aðeins á þetta fyrir n. til athugunar á milli umr.
Ég vil vekja athygli á því í sambandi við þetta mál, að í grg. þeirri, sem fylgir frv., segir: „Árangur og niðurstöður þessarar endurskoðunar er frv. það, sem hér fylgir. Öllum nefndarmönnum er það þó fullkomlega ljóst, að hér hefur verið hafður fullmikill hraði á, og hefði vitanlega verið ákjósanlegt og enda nauðsynlegt að geta haft fyllra samband við alla þá söfnuði, sem breytingarnar ná til, — og geta betur kynnzt skoðunum þeirra og aðstæðum öllum í þessum efnum.“ Hér er viðurkennt í grg., að flanað hafi verið um of að þessu máli. Ég er að því leyti sammála því, sem kemur fram í grg., að taka þyrfti þetta mál til athugunar að nýju með mikilli gaumgæfni, en það vill menntmn. ekki taka til greina. — Enn fremur segir í grg.: „Í dreifbýlinu hafa hins vegar allmörg prestaköll verið prestslaus árum saman. Stafar það einkum af tvennu, að prestssetrin á viðkomandi stöðum hafa verið mjög illa hýst og allmikil ekla á prestum hefur verið undanfarin ár.“ Eins og ég sagði áðan, er meginástæðan fyrir því, að prestunum fækkar, sú, að ekki er búið að þeim sem skyldi. Hins vegar hefur nú fjölgað mjög í guðfræðideild háskólans, þannig að hið síðara er fyrir hendi, að prestlærðir menn verði nógu margir. Nefndin vill komast hjá að gera hér raunverulegar lagfæringar, en flytja prestssetrin og byggja upp á öðrum stöðum, þar sem það kemur að minna gagni og minni er þörfin. — Enn fremur segir í grg.: „Og við guðfræðinám eru nú miklu fleiri stúdentar en nokkru sinni áður, eða hátt á fjórða tug alls.“ Þetta virðist ekki heldur liggja til grundvallar meðferð málsins hjá nefndinni. Ef það er eitthvað annað en ég hef minnzt á, þá getur það ekki verið annað en það, að n. telji, að það sé nauðsynlegt að auka sálgæzluna í þéttbýlinu frekar en í dreifbýlinu. Ég á erfitt með að trúa því, að þetta sé skoðun manna í nefndinni. Þetta er svo mikið ranglæti, að mig undrar það, að um slíkt skuli geta verið samkomulag í 5 manna nefnd. Það á ekki að svipta héruðin prestunum, og það mun kosta miklu meira fé að byggja yfir fjölda presta í bæjunum en að gera prestsseturhúsin sæmilega úr garði úti í sveitunum. — Í grg. segir einnig: „Prestakallaskipunin verður því fyrst og fremst að miðast við þörf safnaðanna á prestsþjónustu og óskir þeirra og það, að kirkjulegt starf geti orðið að sem mestum notum fyrir þjóðina.“ En er þetta frv., eins og það liggur fyrir, ósk safnaðanna? Er það nú ósk þeirra? Ég held, að enginn mæli sterkar gegn frv. en n. sjálf. Helzt er mér að halda, að n. hafi alls ekki lesið grg., og algerlega er gengið í berhögg við hana í frv. „Að kirkjulegt starf geti orðið að sem mestum notum fyrir þjóðina“, stendur í grg. Nú spyr ég, hvort slíkt sé betur tryggt með því, að prestarnir séu fluttir úr sveitinni í bæina. Ég tók berlega fram í ræðu minni um daginn, að án efa hefðum við ekki fengið ýmis þau menningarverðmæti, sem unnin hafa verið af prestum, sem þjónað hafa í dreifbýlinu, ef þeir hefðu setið í bæjunum. Ég benti meðal annars á Passíusálmana, ljóð Valdimars Briems og verk Jóns Vídalíns og trúarljóð Matthíasar Jochumssonar. Verk þessara manna hafa um langan aldur verið andleg næring fyrir þjóðina. Svo vill n. fara að dæma um þetta, en ég leyfi mér að mótmæla skoðunum hennar á málinu. Það er verið að vinna skemmdarstarf með þessu frv., og ef n. finnst svo mikið við þurfa að auka sálgæzluna í bæjunum, þá á að fjölga prestum á þeim stöðum, án þess að það verði á kostnað sveitanna. Form. n. hefur lýst því fyrir fram yfir, að hann vildi afnema alla presta. Hv. 1. þm. N-M. hefur látið svo í veðri vaka, en jafnframt vill hann auka fjárútlát til bygginga fyrir prestana. Ég verð annars að segja, að það eru merkilegar sálir, sem senda hv. 1. þm. N-M. á þing. Fyrst leiðir hann sauðfjársjúkdómana yfir þjóðina, en síðan ætlar hann að svipta sveitirnar prestum sínum. Ég veit ekki, hvernig þroska þess fólks er háttað, sem sendir slíkan mann á þing sem fulltrúa sinn, en hv. þm. virðist halda, að hann geti boðið kjósendum sinum allt.
Hér í grg. er einnig þess getið, að n. hafi leitað álits allra sóknarnefndaformanna í þeim prestaköllum, sem leggja skyldi niður samkv. l. nr. 37 14. marz 1951, og leitað álits þeirra á lögunum. Svo segir: „Svörin báru það ótvírætt með sér, að sterk andúð var á því heima í héruðunum, að prestaköllin yrðu lögð niður.“ Varla er nú hægt að taka skýrar fram, hvern hug sóknarnefndirnar bera til þessa frv. Ég veit satt að segja ekki, hvaða dula hefur verið fyrir augunum á þessum mönnum.
Hér er skýrsla prentuð með frv., sem sýnir fjarlægðir á annexíur. Þess er þó að geta, að þessi skrá stenzt ekki, þannig að ekki er hægt að fara á milli sumra staðanna, nema þegar gott er veður.
Ég skal nú ekki ræða frekar einstakar greinar frv., en taka að ræða einstakar brtt., sem komið hafa fram við það.
Það er þá fyrst brtt. frá hv. 11. landsk., sem prentuð er á þskj. 309. Ég vil nú leyfa mér að spyrja þennan hv. þm., hvort þessar tilfærslur, sem þar er lagt til að gerðar verði, séu í samræmi við vilja hlutaðeigandi sóknarnefnda. Hv. þm. hefur lýst því yfir, að hann taki aftur til 3. umr. till. undir d-lið á þskj. 309, um skipun presta í Reykjavíkurprófastsdæmi. Ég held, að margar af brtt. hans séu til bóta, ef þær ná fram að ganga. Mun ég því greiða atkv. með þeim, ef frv. verður samþ. og gengur til 3. umr.
Ég ætla þá að snúa mér að hv. 1. þm. N-M., bæði vegna þess, að ræða hans var ýtarleg, og eins hefur hann setið í n. En það einkennilega við ræðu hans var það, að hann lýsti því yfir, bæði í upphafi og endi ræðu sinnar, að það gleddi sig, að prestarnir ætluðu að baslast á prestssetrunum í vetur og að þeir hefðu orðið magaveikir af kaffidrykkju. Þetta var hans mesta gleði yfir málinu. Er nú hægt að hugsa sér meira virðingarleysi við þetta mál, sem hér er um rætt? Hann vill byrja á því að leggja niður eitt embætti, fækka um einn prest í Hofteigsprestakalli. Hann segir, að það muni kosta millj. að byggja þar upp og fá nýjan prest. Hvers virði er þá fyrir héraðið að fá byggt upp þar? Hvort er þá betra að byggja yfir prest í Reykjavík t. d., því að ekki ætlar hann að fækka prestunum? Hann segir, að í Kirkjubæ séu sæmilegar byggingar, en vill samt fækka þar. Eiða vill hann leggja niður sem prestssetur. Hann segir, að þetta sé eðlileg tilfærsla, og vill leggja Eiða undir Vallanes, af því að vegur sé kominn þangað. Meginrök hans eru þessi, að vegir séu komnir mn héraðið. En hann gleymir því, að flestir þessir vegir eru ófærir bílum á veturna, og verður þá að fara á hestum eða gangandi. Hann vill einnig leggja niður Mjóafjörð, og ég verð að segja það, að ef á annað borð á að fækka prestum, finnst mér rök hans einna sterkust þar. Ég er ekki nógu kunnugar til að ræða um sumar tilfærslur hans. En ég skal ræða um það, sem ég þekki til, t. d. till. hans um að leggja Múlasókn undir Brjánslæk. Hann sagði, að í Múlasókn hefðu verið haldnar innan við 10 messur árlega að undanförnu. En það er vegna þess, að engin kirkja er þar. Þegar Múli var seldur, var þar bændakirkja, og fylgdi sú kvöð, að hún skyldi endurbyggð, en það hefur ekki verið gert, eftir að hún fauk. Jörðin var aftur seld 1937 og enn með þessari kvöð og féð afhent hinum nýja kaupanda, en það hefur ekki komizt í verk enn þá að endurbyggja kirkjuna. Hv. 1. þm. N-M. talaði um bílfæran jeppaveg yfir Þingmannaheiði, en hún hefur alltaf verið talin einn erfiðasti fjallvegur á Íslandi. Eða hvað sagði Þorsteinn Erlingsson? Og ég er ekki farinn að sjá þann prest, er mundi vilja þjóna Múla frá Brjánslæk, landveg að vetri til, og mundu fáir prestar hafa efni á að hafa hesta á eldi til þess. Þá er að fara sjóleiðina, en það er meira en helmingi lengri leið en frá Flatey. Ég er steinhissa á formanni n., ef hann hefur allt að því fallizt á þetta. Hitt er svo annað mál, að ég tel ekki frágangssök, að Flatey yrði kennsluprestakall, þótt Múla yrði líka þjónað þaðan. En hverjum er að kenna, að enginn prestur hefur fengizt að Brjánslæk? Sannleikurinn er sá, að eins og jörðin er farin, er útilokað, að það vilji nokkur prestur setjast þar að. Það hefur verið settur ágætur prestur þar, en hann varð að hrekjast af prestssetrinu. Mér hefur verið sagt, að jörðinni hafi verið skipt þannig, að presturinn komist ekki til sjávar nema fara yfir land bóndans. Og þetta er gert með æviábúð. Formanni n., sr. Sveinbirni Högnasyni, var kunnugt um það, er hann var með mér á fundi í sumar, að þetta var reginhneyksli.
Þá leggur hv. 1. þm. N-M. til, að Hrafnseyri verði lögð niður. Hann ætlar að vísu að taka þá till. til baka til 3. umr. En ég get fullvissað hv. 1. þm. N-M. um það, að þótt hann kæmi þessum vilja sínum fram núna, þá verður ekki hætt fyrr en Hrafnseyri verður gerð að prestssetri aftur. Menn hafa ekki gleymt nafni Jóns Sigurðssonar á Vestfjörðum, þótt það sé gleymt í Norður-Múlasýslu. Og menn á Vestfjörðum hafa ekki heldur gleymt þeim menningarstraumum, sem hafa runnið þaðan nú á síðari tímum, svo að mörgum fátækum, en efnilegum ungum mönnum hefur veitzt kostur á að fá þar sína fyrstu kennslu, sem þeir hefðu ekki getað hlotið ella. Og það er mergurinn málsins, að það er verið að taka frá þessum mönnum möguleikana á því að fá þessa undirstöðumenntun, sem þar hefur verið veitt, eins og á svo mörgum stöðum öðrum.
Ég skal nú ekki ræða frekar um þessar till., ég hef sýnt fram á með rökum, að þessar till. hv. 1. þm. N-M. eru byggðar á vanþekkingu eða af illum hvötum runnar, nema hvort tveggja sé. Þær eru að minnsta kosti ekki byggðar á þekkingu eða umhyggju fyrir velferð þjóðarinnar. Það er eitthvað annað, sem liggur á bak við. — Ég vil svo að síðustu leyfa mér að bera fram skriflegar brtt., ef málið skyldi ganga til atkv. Hljóða þær svo:
„1. Í staðinn fyrir 1.–12. gr. kemur ein grein, er verður 1. gr. og orðast svo:
Í stað orðanna „1. janúar 1952“ á tveim stöðum í 3. gr. laga nr. 37 1951, um breyting á lögum nr. 45 16. nóv. 1907, um skipun prestakalla, kemur: 1. janúar 1953.
2. Við 13. gr. (verður 2. gr.). Greinin orðast svo: Lög þessi öðlast þegar gildi.
3. Fyrirsögn frumvarpsins orðast svo: Frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 37 1951, um breyting á lögum nr. 45 16. nóv. 1907, um skipun prestakalla.“
Það er að segja, að l., sem eiga að ganga í gildi núna um áramótin, verði frestað um eitt ár, til þess að mönnum verði gefið betra tækifæri til að hugsa um málið. Ég vil benda á það, að væntanlega verður þessu þingi slitið fyrir jól, og þá mundu l. frá í fyrra koma til framkvæmda. Bezta lausnin er því að samþykkja þessa till. til að gefa líka fólkinu í landinu tækifæri til að hugsa um þetta, svo að það fari ekki svo vanhugsað frá þinginu sem það er nú.