04.12.1951
Efri deild: 37. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1289 í B-deild Alþingistíðinda. (2194)

109. mál, skipun prestakalla

Hannibal Valdimarsson:

Þegar þetta frv. um breytingar á prestaköllum kom hér fram í þinginu í fyrra, var þegar auðséð, að hér var um viðkvæmt mál að ræða, og var því ráðstafað á annan hátt en í fyrstu var hugmyndin og enn tekið til meðferðar á milli þinga af milliþn., sem í áttu sæti nokkrir af mætustu mönnum hinnar íslenzku kirkju auk leikmanna. Nú hefur þessi nefnd lagt þetta frv. fram, og sést nokkuð af því, hvernig kirkjunnar menn líta á þetta mál, því að með frv. eru prentuð tvö fylgiskjöl, annað frá Prestafélagi Íslands og hitt frá biskupi Íslands, og má af þeim ráða, að þessir aðilar eru ánægðir með frv. og álíta það vera til bóta. Í öðrum gögnum, sem frv. fylgja, en það eru umsagnir frá prestum landsins, kemur einnig í ljós, að þeir eru yfirleitt ánægðir með það og telja, að það sé í flestum atriðum til mikilla bóta.

Það virðist því, að málið hafi einróma stuðning kirkjunnar, en hins vegar hefur heyrzt rödd, sem varar við að samþykkja það, en það er rödd hv. þm. Barð. Hann hefur ráðizt svo harkalega á þetta frv., að hann hefur ekki sparað hér brigzlyrði og allt að því meiðyrði um þá menn, sem þarna eiga hlut að máli. Það er ekki nóg, að hann hafi þar ráðizt á andstæðinga sína, eins og Pál Zóphóníasson, heldur hefur hann einnig haft þessi ummæli um prófessor Ásmund Guðmundsson og biskupsritara Svein Viking, og hann hefur haldið því fram, að þessir menn bæru svo þungan hug til kirkjunnar, að þeir muni nú nota tækifærið til að bera banaorð af henni. En það vill nú svo vel til, að þarna ætlar hv. þm. að gerast bjargvættur kirkjunnar, þegar bæði guðfræðiprófessor og biskupsritari ætla að granda henni. Það liggur við, að manni detti í hug við þessa björgunarstarfsemi hv. þm. þessi gamli vísupartur: „Því þessu var aldrei um Álftanes spáð, að ættjörðin frelsaðist þar.“ — Ég skal nú ekki fara um þetta fleiri orðum, en víkja nokkuð að málinu í heild.

Ég vil byrja á að taka það fram, að ég tel það hafa verið rétta málsmeðferð, þó að menntmn. hafi ekki gefið út nál. að fengnum upplýsingum biskupsskrifstofunnar, enda er það líka svo, að þó að meiri hl. n. sé kannske frv. fylgjandi í öllum meginatriðum, þá er það svo, að einstakir nm. vilja hafa rétt til að bera fram við það sínar sérstöku brtt., sem líka væri þó ekki víst, að næðu fram að ganga, þó að meiri hl. n. væri þeim samþykkur. Það varð því ekki heldur af því, að nefndin flytti neinar brtt. sjálf, heldur farin hin leiðin, að hver þm. flytti sjálfur sínar brtt. Það má vera, að þm. deildarinnar sé þetta ekki fyllilega ljóst enn, og má þá ef til vill telja það ágalla á málsmeðferðinni.

Um mína persónulegu afstöðu til þeirra till., sem fram eru komnar, er það að segja, að ég mun greiða mitt atkv. með öllum till. hv. 11. landsk. þm., enn fremur mun ég greiða atkv. með allmörgum af till. hv. 1. þm. N-M. og sennilega með einni af till. hv. þm. Árn.

Þá vil ég fara fáeinum orðum um þær till. hv. 1. þm. N-M., sem ég get ekki með öllu fallizt á, það er 24.–26. brtt. hans. Hann leggur þar til, að við Ísafjarðarprestakall verði bætt Eyrarsókn, en kirkjan er nú á Eyri í Seyðisfirði. Í frv. er gert ráð fyrir því, að selja megi Hvítanes og flytja prestssetrið á hentugri stað, og gæti þá jafnframt andvirði þess orðið til þess að reisa prestssetur á þeim stað, og hefur þá jafnframt verið haft í huga, að prestssetrið gæti í framtíðinni orðið í Súðavík, þar sem presturinn hefur orðið að sitja og hefur komið upp sunnudagaskóla og telur sig geta haft meiri áhrif þar í fjölmenninu en þar, sem prestssetrið er nú. Hins vegar held ég, að Ísafjarðarpresturinn hafi nóg að gera, þó að þessu sé ekki bætt við hann. Ég mun þess vegna leggja á móti þessari till. og sömuleiðis till. 25–26, sem leiðir hverja af annarri. Það kann þó að vera, að þar gegni nokkuð öðru máli.

Þá er það, sem varðar 80. tölulið þessa frv. Þar er lagt til, að Staðarsókn í Aðalvík verði lögð niður, og er það ef til vill ekki að undra, þar sem aðeins eru 3 persónur á Hesteyri og 30 í Aðalvík og nokkrar í Látrum og prestssetrið í eyði. Nú er engin vissa, að það skipaðist svo, að þetta þyrfti að fara í auðn allt, ef þar fengist prestur til, en það verður að teljast allsendis óvist, að nokkur vildi hverfa að því. Mér þætti það því vera spor í þá átt að leggja þetta byggðarlag í eyði, ef þetta prestakall væri lagt niður. Ég tel þess vegna ekki ráðlegt að leggja þetta prestakall niður, þannig að Staðarprestakall í Aðalvík verði lagt undir Stað í Grunnavík, — ég held, að það væri að stuðla enn frekar að því, að þetta byggðarlag leggist alveg í eyði. Ég mundi því leggja til, að sett yrði inn „klásúla“ í frv. um, að þetta yrði ekki lagt niður.

Þá vil ég fara nokkrum orðum um frv. í heild og það, sem ég tel að sé helzt ábótavant við það. Er það þá einkum 6. gr., þar sem rætt er um hin svonefndu kennsluprestaköll, en svo er ráð fyrir gert, að.til verði 10 kennsluprestaköll, þar sem svo fá sóknarbörn eru, að það er ekki talið vera fullt starf fyrir prestinn að annast kallið, en greinin hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Sóknarprestarnir á Skeggjastöðum, Mjóafirði, Hofi í Öræfum, Sauðlauksdal, Hrafnseyri, Súgandafirði, Árnesi, Hvammi í Laxárdal, Grímsey og Raufarhöfn skulu jafnframt gegna þar kennarastörfum, og taka þeir þá laun fyrir hvor tveggja þessi störf í næsta launaflokki fyrir ofan aðra sóknarpresta.“

Ég skal taka það fram, að þó að svo kunni að líta út, að hið andlega starf þessara manna sé svo lítið, að þeir hafi ekki nóg að gera, og ég geti jafnframt fallizt á það, að þeir menn, sem hafa ekki nema brot úr starfi að gegna, haldi ekki til lengdar fullum andlegum kröftum, þá er þess að gæta líka í þessu sambandi, að í fyrsta lagi þarf nokkurn tíma til að koma þessu skipulagi á. Þeir prestar, sem nú útskrifast úr guðfræðideild, hafa ekki kennararéttindi frá Kennaraskólanum og hafa þess vegna ekki rétt til að annast kennslu. Og svo er það annað, að þeir menn, sem í framtíðinni leggja stund á guðfræði, munu ekki ávallt, þegar þeir hefja nám, vita það fyrir, hvort þeir muni sækja um þessi kennsluprestaköll, og þess vegna ekki hægt fyrir þá að sjá, á hvern hátt þeir eiga að haga sínu námi, og jafnvel þegar þeir hafa fengið kennararéttindi, er ekki víst, að þeir vilji heldur verða prestar en kennarar. Það er með öðrum orðum margt, sem af þessu gæti leitt, og ég held, að þetta líti betur út á pappírnum en það muni verða, þegar til framkvæmdanna kemur.

Þegar ég líka fór að blaða í bréfum, sem hv. menntmn. bárust 1. des. og ég sá ekki fyrr en í dag, sá ég, að það eru menn meðal prestanna, sem telja þetta varhugavert. Þar á meðal sá ég tvö bréf frá prestum, sem ég þekki nokkuð til. Annað þeirra er frá Magnúsi Guðmundssyni, presti í Ögurþingum, og vil ég leyfa mér að lesa hér upp úr því dálítinn kafla, en hann segir um þetta atriði, eftir að hann hefur rætt frv. í heild og lýst yfir ánægju sinni yfir framkomu þess og hefur lýst því yfir í upphafi, að hann telji, að þetta frv. muni geta orðið til stórra bóta:

„Þó er ég mótfallinn því ákvæði frv., að prestar séu skyldaðir til þess að taka að sér störf barnakennara jafnframt hinu eiginlega prestsstarfi, og legg því til, að 4. gr. verði felld niður. Að öðru leyti vil ég ekki gera athugasemdir við frv. að svo stöddu.“

Þessi ungi prestur er þó síður en svo mótfallinn því að hafa samskipti við ungt fólk, eins og ég hef áður minnzt á.

Þá er hér í öðru bréfi lýst afstöðu prestsins á Stað í Súgandafirði. Hann rekur fyrst efnið og athugasemdir sínar við það í löngu og skilmerkilegu máli, en lýsir því svo yfir, að hann telji, að þessi kennsluskylda meðfram prestsstarfinu verði svo umfangsmikil, að það sé ekki rétt að ætla prestum það fyrir ekki meiri þóknun, auk þess sem það hafi ill áhrif fyrir annað starf prestsins. En hann segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:

„Þá eru það þessi tíu prestaköll, sem ætlazt er til, að presturinn stundi barnakennslu í jafnframt prestsstarfi sínu. Þessa 6. gr. frv. tel ég skilyrðislaust eiga að fella niður úr frumvarpinu. Hún varð strax til þess að vekja hjá mér þá spurningu, hvort það væri prestsstarfið eða kennarastarfið, sem metið væri svo lítið og lítilsvert, að það gæti verið aukastarf jafnframt hinu. Að líkindum er það ekki kennarastarfið, því að svo er að sjá sem presturinn eigi að starfa sem fullgildur kennari — og verður þá auðvitað að hafa aflað sér þeirrar menntunar, sem kennurum ber lögum samkvæmt. En í skólalöggjöfinni eru ákvæði um starfstíma: 6 kennslustundir á dag, sem virðist vera ærið nóg dagsverk, þegar við bætist nauðsynlegur undirbúningur og heimastarf kennslunni viðvíkjandi. Líklega hefur því nefndin litið svo á, að það sé starf prestsins í þessum fámennari prestaköllum, sem væri svo lítið og lítilfjörlegt, að ekki munaði um það sem aukagetu.

En þá er aftur spurning: Er það í rauninni minna verk að halda uppi messugerðum í fámennum prestaköllum en fjölmennum? Það má færa rök að því, að svo er ekki, ef presturinn stundar starf sitt af samvizkusemi. Og um hin svonefndu aukastörf er það að segja, að ekki er mikill munur á því starfi, sem fer í að ferma 5 börn eða 50, eða hvort nokkrum hjónavígslum eða barnsskírnum er fleira eða færra. Nokkur munur er að vísu á því, hvort greftranir eru 5 eða 50 á ári, en ekki svo mikill, að undirbúningstími til þeirra nemi sem svarar kennslustörfum í heilan vetur.

Að athuguðu máli mundi ég telja þessi kennsluprestaköll mjög óaðgengileg, bæði vegna þess, að þau hljóta að krefjast meira náms af prestum sínum en önnur, þ. e. a. s. kennaraskólamenntunar, og að auki gera mjög frekar kröfur til starfskrafta prestanna. Þar á ofan bætist svo, að launin eru ekki nema litlu einu hærri en hjá öðrum prestum. Kæmist þessi skipan á, tel ég, að fyrir því væri séð að miklu leyti, að þessi prestaköll væru án prests í framtíðinni, þar til annar og skynsamlegri háttur yrði upp tekinn.

Ég mundi ekki hika við að gerast heldur barnakennari við skóla, ef velja skyldi um stöðu kennara og kennsluprests, og hafa þá sumarið til að vinna upp þann fjárhagslega litla mismun, sem á launum er. En kennsluprestsstarf mundi ég aldrei taka að mér, vegna þess að ég þekki bæði störfin af reynslu.

Það mun vera hugsun um sparnað, sem kemur fram í þessum tillögum um kennslupresta. Satt að segja finnst mér það einkennilegt, ef kirkjunnar menn ganga inn á slíkar sparnaðarráðstafanir. Eða mundi ekki ástæða til að ætla, að þessi starfaofhleðsla gengi fremur út yfir prestsþjónustuna en kennsluna? Þar virðist sem ákveðnari lagafyrirmæli bindi frekar.“

Raddir í þessa átt hafa heyrzt frá prestunum, þar sem þeir lýsa áliti sínu á kennslufyrirkomulagi prestanna. Þeim þykir frekar líkur til þess, að kennsluskylda prestanna muni gera prestaköllin óaðgengilegri og að síður muni fást prestar til að sækja um þau en nú. Ef þetta leiddi til þess, að erfiðara yrði að fá presta til að sækja um þessi prestaköll og um leið yrði torveldara að fá kennslukrafta í þau, þá er verr heiman farið en heima setið, og fólkinu í dreifbýlinu mundi vera gerð lítil þægð með slíkum ráðstöfunum.

Það var þetta, sem ég ætlaði að taka fram við þessa umr., og sé ég ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri. Það getur verið, að ég beri fram brtt. við frv. í tvennu lagi: Í fyrsta lagi, að prestakallinu í Aðalvík verði gefinn eins konar biðtími til að sjá, hver örlög þess byggðarlags verða, og verði prestur látinn sitja í Aðalvík fyrst um sinn. Í öðru lagi, að 6. gr., um kennsluskyldu prestanna, verði felld niður úr frv., því að ég er viss um, að hún verður hvorki til góðs fyrir kirkjumálin né kennslumálin í landinu.