06.12.1951
Efri deild: 38. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1304 í B-deild Alþingistíðinda. (2199)
109. mál, skipun prestakalla
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Herra forseti. Þegar ég frestaði ræðu minni í þessu máli í fyrrakvöld, tók ég það fram, að það lægju fyrir skriflegar brtt. frá hv. þm. Barð., og var þeim útbýtt á fundinum. Sagði ég, að n. mundi athuga brtt., áður en umr. væri lokið. Ég vildi reyna að efna þetta heit mitt um að bera brtt. undir menntmn. En n. var ekki sammála um það, hvernig ætti að afgreiða þær. Virðist það vera vilji allra nm. að óska eftir því, að hv. flm. brtt. taki till. aftur til 3. umr. Ég minntist á þetta einslega við hann, og mér fannst, að af skiljanlegum ástæðum vildi hann ekki gera það, þar sem hann gæti þá ekki, þótt hann hefði viljað, komið fram með neinar brtt. við frv., ef sú brtt. félli t. d. við 3. umr. Ég veit ekki, hvort honum hefur snúizt hugur síðan. En betra mun fyrir alla þm. að sjá, hvað verður ofan á um þessa brtt., áður en farið væri að leita atkv. um brtt., sem liggja fyrir um frv. En samt tel ég þetta mjög góða og gilda ástæðu frá hans sjónarmiði. Hann vill fyrst sjá, hvernig fer um þá brtt., áður en hann ber fram nýjar brtt., ef þessi brtt. hans, sem hér liggur fyrir, verður ekki samþ., en auðvitað gæti hann tekið brtt. aftur til 3. umr. En það eru margar brtt., t. d. mínar brtt., sem ég er ekki enn búinn að lýsa yfir, að ég taki aftur til 3. umr. En þær eru yfirleitt ekki svo margar eða margbreyttar, að þær geti ekki komið til atkv. við þessa umr., og hef ég nú ekki meira að segja í þessu máli. Ég hef talað tvisvar í því og tekið mína afstöðu til brtt. við frv., og mun það koma skýrar fram við atkvgr. En ég er enn að velta því fyrir mér, hvernig ég eigi að snúast við brtt. hv. þm. Barð. Að mörgu leyti tel ég, að það geti orðið fyrir beztu, að hún nái fram að ganga, því að þá er víst, að status quo haldist næsta ár, og þá yrði búið að undirbúa rækilegri umsögn heiman úr héruðunum en nú er. Þá væri hægt að athuga, hvernig ætti að snúast við þessu stórmáli, og tími vinnst til að athuga þetta betur. Ég verð að taka undir það með hv. 1. þm. N-M., að það beri ekki nein merki þess, að kristilegur áhugi hjá klerkastéttinni sé í rénun, þó að þetta frv. sé til meðferðar. Ég býst fremur við því, að þetta veki marga menn til umhugsunar um kirkjumál landsins.