06.12.1951
Efri deild: 38. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1317 í B-deild Alþingistíðinda. (2207)

109. mál, skipun prestakalla

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Ég skal ekki tefja umr. og skal vera stuttorður. Ég hef lagt fram brtt. við þetta frv. og geri það af hlýðni við sókn og safnaðarmenn í Vestmannaeyjum, en ekki af persónulegum skoðunum. Brtt. á þskj. 235 er um að flytja Ofanleitisprestakall og láta það heyra undir prófast, sem búsettur er í Kjalarnessprófastsdæmi. Eins og flestum mun kunnugt, hefur þessi sókn frá öndverðu heyrt undir Rangárvallaprófastsdæmi. Það gæti valdið nokkrum misskilningi, ef engin skýring fylgdi, hvers vegna þessa er óskað. Ég hefði persónulega viljað, að svo væri áfram, vegna þess að ég á svo margar góðar minningar um Rangárvallasýslu og fólkið þar frá fornu fari. Ég veit með vissu, að þessi flutningsvilji safnaðarins byggist ekki á því, að honum líki ekki við prófastinn á Breiðabólstað. Hann er mætur maður og vel metinn í Vestmannaeyjum. Þetta byggist á því, að samgöngur við Rangársand hafa að mestu leyti fallið niður og eiginlega að öllu leyti þær gömlu samgöngur, sem tíðkuðust. Þá fór þarna póstur og vöruflutningar, og lærðir og leikir fóru þessa sjóleið upp á Sand. Með nýrri tækni er svo komið, að beint samband við Rangárvallasýslu er sama sem ekkert orðið. Þess vegna hefur söfnuðurinn komizt að þeirri niðurstöðu, að betra væri að hafa prófastssamband hingað suður á bóginn. Helzt vildi ég, að eyjarnar gætu tilheyrt Rangárprófastsdæmi, en ég sé á því annmarka og tel þá eðlilegast að fara fram á, úr því að ég er farinn að fara fram á breyt., að sóknin tilheyri Kjalarnessprófastsdæmi. Ég vil taka það fram, herra forseti, og ég legg áherzlu á það, að það er ekki vegna þess, að prófasturinn hafi misst sitt góða álit í Vestmannaeyjum, að lagt er til, að þessi flutningur eigi sér stað, heldur er það af samgönguástæðum, að þessi safnaðarvilji er fram kominn. — Ég ætla ekki að fara inn á þær deilur, sem hér hafa staðið, en ég ætla aðeins að segja, að ég tel æskilegt, að þingið ráði þessu prestakallamáli til lykta og sem mest sé farið eftir till. þeirra manna, sem mest hafa unnið að þessum málum og mestan áhuga hafa á þeim, og þá vita allir, við hverja er átt.