10.12.1951
Efri deild: 40. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1328 í B-deild Alþingistíðinda. (2220)
109. mál, skipun prestakalla
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég tel eðlilegt, að þessi till. komi að efni til fyrst til atkvæða, þar sem hún samsvarar eiginlega rökstuddri dagskrá. Annars vil ég lýsa því yfir, að mér virðist, að hún eigi að efni til að afgreiðast þannig. Hins vegar efast ég um, að hún geti að formi til staðizt, því að hún er um breyt. á allt öðru frv. en hér liggur fyrir. Því vildi ég beina því til hæstv. forseta, hvort hægt sé að bera hana upp í þessu formi. — En ég held, að ekki sé hægt að láta þetta ganga þannig fram hjá sér, því að ég tel, að þetta sé eðlilegt að efni til.