10.12.1951
Efri deild: 40. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1328 í B-deild Alþingistíðinda. (2222)
109. mál, skipun prestakalla
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Ég vil leyfa mér að benda á, að hér er um að ræða frv. til l. um skipun prestakalla, en ef þetta er orðað eins og till., þá verður það frv. til l. um breytingu á l. nr. 37 1951, um breyt. á l. nr. 45 16. nóv. 1907, um skipun prestakalla. — Það er enginn vafi á því, að hér er um allt annað frv. að ræða, en það er að vísu sama efni, svo að hægt er að fá þetta samræmt, en ég vildi fá um það forsetaúrskurð. Ég tel hæpið, að brtt. þessi geti komizt að.