17.12.1951
Efri deild: 45. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1332 í B-deild Alþingistíðinda. (2231)
109. mál, skipun prestakalla
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég skal ekki vera langorður, en víkja nokkrum orðum að þeim till., sem hæstv. dómsmrh. mælti með.
Ég skal viðurkenna, að það getur verið erfiðara að þjóna frá Desjarmýri en Vallanesi, og fyrst presturinn getur ekki hugsað sér, að Möðrudal verði þjónað frá Hofi, þá má eins vel gera það frá Skútustöðum. Aftur á móti vil ég mótmæla b-lið till. hans, að láta Tjörn á Vatnsnesi vera prestssetur áfram. Það væri að gera ósamræmi í störfum nefndarinnar, ef það væri gert. Ef litið er á það, að nú er kominn vegur hringinn í kringum Vatnsnesið og annexíuleiðin að Tjörn er ekki nema 33 km og meðfram sjó að fara, þar sem snjólétt er, og fjöldi sóknarbarna með því fyrirkomulagi ekki nema um 400 manns, en hins vegar ef Tjörn verður höfð sem prestssetur áfram, þá verða ekki nema 143, og ef það á að fara að hafa prest yfir þeim, eftir að kominn er akfær vegur heim á hvern einasta bæ, þá sé ég ekki, að það sé nein ástæða til þess, borið saman við ýmsa aðra staði á landinn. — Hvað viðvíkur prestssetrinu á Kirkjubæ, þá er fyrirhugað, að hann komist í vegasamband, og þegar það verður orðið, verður ekki nema 4 km leið yfir Tunguna að Kirkjubæ, og þá verður presturinn þar ekki illa settur. — Ég mun líka greiða atkv. með einum aðstoðarpresti hjá hæstv. ráðh. Ég var með þessum prestum, en vildi láta fækka meira, svo að það yrði þörf fyrir þá. Til dæmis er það svo um einn góðan kunningja minn, prestinn á Hofi, sem hæstv. dómsmrh. las bréfið frá, að hann er búinn að vera til heilsubótar síðan í haust hér í Reykjavík, og þá hefur presturinn á Skeggjastöðum orðið að þjóna fyrir hann í vetur. Meðan svona er ástatt, er hægt að láta nágrannaprest þjóna, af því að ekki er meira að gera, og er þá ekki bein þörf fyrir marga aðstoðarpresta. En þó er ég með því að hafa einn aðstoðarprest.
Þá á ég hér tvær brtt. Önnur þeirra er um það, að hið nýja prestakall, sem er í frv. kallað Hríseyjarprestakall og prestinum ætlað að sitja í Hrísey, verði kallað Stærra-Árskógsprestakall og prestinum ætlað að sitja í Stærra-Árskógi. Það er kirkjustaður í landi og ein kirkja úti í Hrísey. Stærri-Árskógur er eign ríkisins. Það er búið að byggja þar upp, þar í túnfætinum er heimavistarbarnaskóli, og bóndinn, sem þar hefur búið, dó í sumar, og ekkja hans, sem getur setið í ábúðinni áfram, hugsar sér að vera þar næsta ár, en börnin vilja ekki búa áfram á jörðinni, og losnar hún þess vegna úr ábúð 1953, svoleiðis að það er alveg sjálfsagt að láta prestinn fá þessa jörð til ábúðar, en ekki að fara að láta hann vera í Hrísey. Það sparast ekki bygging með þessu. Byggingin í Stærra-Árskógi er gömul baðstofa, torfbygging, sæmilegt hús. Þetta er því bygging, sem presturinn mundi ekki sætta sig við, svo að þar þarf að byggja fljótt. En það er líka í Hrísey, svo að ekki er munur á því. En hann er þar í þjóbraut og að öllu leyti betur settur en í Hrísey. — Hin brtt. er afleiðing af því, sem samþ. var hér áður, þ. e. að fella Mjóafjörð niður sem prestakall, og þá er ekki hægt að láta það standa eftir sem prestakall í annarri grein, og má skoða það sem leiðréttingu. Ég geri þessar tvær brtt. við frv. nú og aðrar ekki. Ég gekk inn á það á sínum tíma í milliþn. að flytja ekki aðrar brtt. en þær, sem ég er kominn með, og á hví er minn fyrirvari byggður. Ég teldi æskilegt að flytja margar aðrar brtt., en kem ekki með þær, því að inn á það gekk ég. — Ég vil svo leggja áherzlu á, að varatill. hæstv. dómsmrh. verði samþ.