18.01.1952
Neðri deild: 62. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1355 í B-deild Alþingistíðinda. (2271)
109. mál, skipun prestakalla
Ásgeir Ásgeirsson:
Herra forseti. Ég flyt eina brtt. við þetta frv., um að taka Súgandafjörð út úr 6. gr., en þar er gert ráð fyrir að sameina í nokkrum prestaköllum barnafræðslu og prestsþjónustustörf.
Ég heyri á hv. frsm. n., að hv. n. hefur ekki tekið afstöðu til brtt. einstakra þm. Ég mun því taka till. mína aftur nú í þeirri von, að n. geti mælt með henni að athuguðu máli.
Í Súgandafirði býr hátt á fimmta hundrað manns, svo að prestsþjónustan er ærið starf fyrir prestinn. Ég hygg, að þar séu 40–50 guðsþjónustur á ári auk ýmissa annarra skyldustarfa félagslegs og menningarlegs eðlis, sem presturinn þarf að gegna. Ég hygg því, að of langt sé gengið með því að sameina þarna tvö fullgild störf.
Margir mundu vilja varðveita prestssetrið að Stað og ekki skylda prestinn til að búa á Suðureyri. Ég mun flytja brtt. um þetta. Staður er ágæt jörð, og mér er kunnugt um, að presturinn vill búa þar áfram.
Ég tek brtt. mína aftur til 3. umr. og vænti þess, að hún fái meðmæli hv. n.