18.01.1952
Neðri deild: 62. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1363 í B-deild Alþingistíðinda. (2274)

109. mál, skipun prestakalla

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Í frv. er gert ráð fyrir, að Berunessókn verði tekin undan Djúpavogsprestakalli og lögð undir Heydalaprestakall. Ég er mjög óánægður með þessa breytingu, og sama er að segja um alla sóknarmenn og báða prestana, sem hlut eiga að máli. Mér þykir þetta undarlegt, að hvorki skuli talað um þetta við prestana né neinn af sóknarmönnum. Mönnum er alveg óhætt að trúa því, að sóknarmenn og prestarnir sjái rétt 1 því, að bezt fari á því að Berunes fylgi framvegis Djúpavogi. Um málið að öðru leyti vil ég segja það, að ég er fremur ánægður með till. meiri hl. n. og er tilbúinn að afgreiða frv. eins og það kemur frá n. nú. Ég mun hafa sömu afstöðu og hv. þm. A-Sk. um Þingvallaprestinn og tel, að milliþn. hafi þar farið skynsamlega að.