22.01.1952
Efri deild: 68. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1373 í B-deild Alþingistíðinda. (2299)

109. mál, skipun prestakalla

Landbrh. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Þetta mikla hítamál er nú komið aftur frá hv. Nd., þar sem gerðar hafa verið á því allmiklar breyt. frá því, sem það var, þegar þessi hv. d. gekk frá því.

Það fer nú að líða að þinglokum, og ef ljúka á þessu máli, þarf að taka upp önnur vinnubrögð, sem líklegri eru til að málinu verði lokið, og ef til vill þau, að þessi hv. d. gangi frá sínum þrengstu sjónarmiðum, því að ef málinu er breytt hér, má gera ráð fyrir því, að því verði breytt aftur í Nd., og verður það þá að fara til Sþ.

Án þess að fara að rekja efni þessa máls nánar á þeim stutta tíma, sem ég hef til umráða, er skemmst frá því að segja, að bætt hefur verið inn í frv. í Nd. fjórum prestaköllum, sem ekki voru í frv. eins og það var, er það kom frá mþn., en þessi prestaköll eru Stóri-Núpur, Breiðabólstaður, Staðarhraun og Tjörn. Nú má segja, að þetta sé ekki stórfelld breyt., því að fækkað er um tvo presta frá því, er var, í Mjóafirði og annan umferðarprestinn. Það er því fjölgað um fjóra presta, en samtímis fækkað um tvo, svo að fjölgunin nemur í raun og veru tveimur. Vitanlega væri eðlilegast að gera sem minnstar breyt. á málinu frá því, sem það lá fyrir, þar sem það var rannsakað og rætt af mönnum, sem kunna góð skil á málefnum kirkjunnar og eru mjög færir á sínu sviði, en auðvitað hefur Alþ. þrátt fyrir það fyllsta rétt til að gera þær breyt. á frv. mþn., sem því sýnist.

Viðvíkjandi þeim prestssetrum, sem bætt hefur verið við, má segja, að breyt. eru ekki miklar frá því, sem nú er. Það er öllum augljóst, að það verður ekki byggt fyrst um sinn á þessum prestssetrum. Bygging á Tjörn verður ekki látin sitja fyrir byggingu á þeim prestssetrum, þar sem allir eru sammála um, að prestar eigi að vera, en þar er svo háttað byggingum, að útilokað er, að prestur geti haldizt þar við. Það er líka öllum kunnugt, að það er ekki mikill hraði á fjárveitingum Alþ. til þess að leysa þessi mál. Það gildir sama máli um Breiðabólstað og Staðarhraun og um Tjörn. Þar hafa ekki verið prestar í mörg ár, og vitanlega verða aðrir staðir, sem allir eru sammála um að þurfi presta, látnir sitja fyrir um byggingar. Ég ætla ekki að telja upp öll þau prestssetur, sem byggja þarf upp, en vil aðeins geta þess, að á sumum prestssetrum er þannig ástatt, að presturinn hefur orðið að flytja til Reykjavíkur. Það, sem gerist, ef þetta verður samþ., er, að þessi mál verða í sama fari og nú, svo framarlega sem Alþ. veitir ekki nægilegt fé til að byggja upp prestssetrin. Niðurstaðan verður því sú, sem ég vildi forðast, að jarðir þessara prestssetra níðast niður, af því að ekki er hægt að leigja jarðirnar nema eitt ár í senn, t. d. er Breiðabólstaður í niðurníðslu bara af því, að ekki er hægt að leigja jörðina nema eitt ár í senn, og þess vegna vill enginn gera henni neitt til góða. En vitanlega kemur röðin að þessum jörðum síðar, ef aðrir verða þá ekki komnir hér, sem annað ákveða. En afleiðingin af þessu er sú, að næsti prestur fær hálf önnur laun fyrst um sinn.

Nú eru þetta vitanlega rök fyrir því að breyta frv. á ný í það horf, sem það var í, þegar það kom frá n., og það hef ég alltaf viljað í aðalatriðum. En það er áhugi fyrir því í þinginu og líka hjá þjóðinni, að málið nái fram að ganga. Ég hefði því viljað, þrátt fyrir þessa ágalla, sem ég hef lýst, að málinu yrði vísað til menntmn. þessarar hv. d., og vildi óska þess, að n. ræddi við hv. menntmn. Nd., til þess að athuga það, hvort líkur eru til þess, að málið verði að fara til Sþ., ef verulegar breyt. eru gerðar á því hér í d. En fari málið þangað, er tvísýnt, að það fái afgreiðslu nú á þessu þingi. Það væri æskilegt, að málið yrði afgr. eins og menntmn. þeirrar hv. d. lagði til, og hv. menntmn. Nd. gæti athugað, hvort líklegt sé, að málið verði samþ. í Nd., þó að því verði breytt í svipað horf og menntmn. Nd. lagði til. Vænti ég, að n. vilji taka að sér þetta hlutverk, en vitanlega er henni skylt að taka við málinu til athugunar, en ekki meira en svo að athuga það með þeim hætti, sem ég sting upp á. En ef það yrði gert, þá yrðu ekki frekari umr. um málið á þessu stigi, fyrr en þessi leið hefur verið rannsökuð. Það gæti ráðið töluverðu um afstöðu mína, sem er sú, að ég vil helzt láta breyta frv. frá því, sem nú er, hvernig undirtektir yrðu, þegar þessi leið er rannsökuð.