24.01.1952
Neðri deild: 70. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1393 í B-deild Alþingistíðinda. (2323)

109. mál, skipun prestakalla

Landbrh. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Frv. þetta hefur tekið allmiklum breytingum síðan það fór frá þessari hv. deild. Það lá svo fyrir, að í Ed. voru gerðar á því allverulegar breytingar, og það er ekki efi á því, að í þeirri hv. deild var mikill meiri hluti með því að fella niður allmiklu fleiri af þeim prestaköllum, sem inn í frv. var bætt hér. Meðal þessara prestssetra voru Tjörn á Vatnsnesi, Breiðabólstaður og Staðarhraun, og ég má fullyrða, að ég segi ekki of mikið, þó að ég segi, að það var mikill meiri hluti fyrir því að fella þessi prestssetur niður. Enn fremur var ákveðið, eftir að prestssetur voru orðin níu í Árnessýslu, að fara svo sem gert var með Selfoss og Hraungerði. Síðan var haldinn fundur sameiginlega með menntmn. Ed. og Nd., og kom í ljós á honum, að ekki mundi nást samkomulag um, að Ed. mælti með öllum þeim breytingum, sem Nd. hafði þá lagt til, að gerðar yrðu til fjölgunar. Og þær minnstu breytingar, sem á var hægt að sættast af þessum meiri hluta Ed., voru, að Tjörn og Staðarhraun skyldu vera gerð að kennsluprestaköllum, og eftir að prestssetrin í Árnessýslu voru orðin 9, að prestssetrið á Hraungerði mætti flytjast að Selfossi, ef hentara þætti.

Við töldum, að ekki væri um annað að ræða en að gera sem minnstar breytingar og þannig væri líklegast að málið næði fram að ganga á Alþingi. Það var því allt gert í Ed. til að búa frv. þannig úr garði, að það mætti ná fram að ganga í þessari hv. d., því að það var sjáanlegt, að ef það yrði að fara til Sþ., þá væru um leið miklar líkur til, að það næði ekki fram að ganga á þessu þingi. Þannig var af meiri hluta Ed. gengið eins langt í samkomulagsátt og hægt var til þess að koma málinu fram.

Það hafa komið raddir um, að fólk sé ekki ánægt með þetta. Það verður aldrei samþykkt svo frv., að allir verði ánægðir með það. Þó að málinn verði frestað um 1, 2 eða 3 ár, verður aldrei samþ. frv., sem allir eru ánægðir með. Þetta er sams konar mál og hér hafa verið á þingi. Þótt ef til vill sé ekki leyfilegt að bera saman svo óskylda hluti, annars vegar andlega og hins vegar veraldlega, þá er þetta eins og var um vegalögin hér á Alþingi, og er hafður einmitt sami háttur á hér og var við það mál. Í báðum tilfellunum er um að ræða hagsmunamál kjördæmanna, og þar er skyldleiki málanna, þó að annað málið varði andlega og hitt veraldlega velferð eða hagsmuni kjördæmanna. Verður þetta frv. ekki afgr., nema menn reyni að ná samkomulagi um það, sem snertir ýtrustu hagsmuni kjördæmanna. Ef það á að koma betri skipun á þessi mál, þá held ég, að bezt sé að fara sem næst till. sérfróðra manna, sem hafa verið valdir til að athuga þetta. — Ég ætla ekki að eyða hér löngum tíma í ræðuhöld, en ætla aðeins að minnast á Selfoss.

Hugsið ykkur þau rök, sem hv. 1. þm. Árn. beitti hér áðan. Þannig er málinu farið, að í fámennri sókn hefur verið ákveðið prestssetur, og er það gert á móti vilja ýmissa þm. Nú, þegar frv. er orðið þannig, notar hv. 1. þm. Árn. það sem rök fyrir sínu máli, að þar sem svo er ástatt, að fámenn sókn hafi prest, eigi Selfoss einnig að hafa sérstakan prest. Jafnframt upplýsir hann, að þarna séu um 1200 manns og í sveitunum í kring sé á 5. hundrað manns. En í l. er ákveðið, að einn prestur skuli vera á hver 4 þús. íbúa og í Reykjavík á hver 5 þús. Einnig er ekkert lengra frá þessu prestssetri til Selfoss heldur en sumar vegalengdirnar, sem prestar hér í Reykjavík þurfa að fara. Nú er komið með þá brtt. að gera Selfoss að prestssetri þrátt fyrir þessi ákvæði laganna. Vitanlega leiðir af lögunum, að ef svo margir setjast að á Selfossi, þá kemur þar sérstakur prestur. Það er annað atriði og mun leiða af sjálfu sér.

Svo er það annað, sem vert er að komi hér fram varðandi það, að Staðarhraunsprestur hefur verið gerður að kennslupresti, og hefur honum verið lögð kennsluskylda á herðar. Hefur þessari ráðstöfun verið mótmælt. Hv. þm. Mýr. er búinn að biðja hér um orðið; og þykist ég vita, að hann ætli einnig að mótmæla þessu, og ætla ég að svara því fyrir fram. Það er rétt, að Mýramenn hafa ákveðið að hafa sameiginlegan skóla fyrir alla sýsluna. Ef svo er, að þetta sé röng ákvörðun, sem tekin hefur verið varðandi Mýrasýslu, þá er það líka vitleysa, sem þingið ákveður. Ef þetta verður samþ. varðandi Mýrasýslu, er ekkert líklegra en aðrir staðir taki sömu ákvarðanir og taki Mýrasýslu sér til fyrirmyndar. Þá eru líka þessi kennsluprestaákvæði eintóm vitleysa. — Það er sagt, að það sé útilokað, að presturinn geti búið á prestssetrinu og kennt í skólanum, þar sem það sé svo mikil vegalengd fyrir hann. Ég held, að það sé eitthvað milli 60 og 70 km. Aldrei var talað um það sem neitt þrekvirki, þegar einn af beztu klerkum þessa lands, Jón Guðnason, kenndi um 10–20 ára skeið í skólanum á Reykjum í Hrútafirði og bjó sjálfur á Prestsbakka, sem er hinum megin við Hrútafjörðinn. Er það miklu meiri vegalengd og oft ófær eða illfær. Þótti engin ástæða til að kvarta undan því, þó að hinn aldraði klerkur þjónaði í sinni sókn og innti jafnframt af hendi kennslustörf handan fjarðarins. Þótti slíkt aðeins til fyrirmyndar. Nú er það vitað mál, að Mýrasýsla er ein snjóléttasta sveit landsins, og er að mestu leyti hægt að ferðast þar um á bil. Eftir þeim upplýsingum, sem hv. þm. Mýr. hefur getið, þá er í þessum söfnuði 126 manns. Ef 126 manna söfnuður telur sig ekki geta komizt af án sérstaks prests, getur ríkið ekki látið hann hafa prest, nema sá prestur hafi önnur störf með höndum. Þetta kennsluprestafyrirkomulag er aðeins tilraun, sem enn er ekki vitað, hvernig lánast. Verður maður að bíða og sjá, hvernig þetta fer, bæði með Staðarhraun og aðra staði.

Ég las í einu dagblaðanna ummæli eins prests, sem hefur dvalið hér í Reykjavík um tíma tvo undanfarna vetur. Telur hann nauðsynlegt fyrir sig að dvelja hér tíma úr árinu til þess að halda sér andlega vakandi. Segist hann munu segja af sér, ef farið væri fram á það við hann, að hann hætti því. Nú á presturinn á Þingvöllum ekki að geta dvalið þar, því að þar sé ekki nægilega margt fólk. Prestarnir mega sem sagt ekki dvelja í fjölmenni og ekki heldur í fámenni. Í Staðarhraunssókn er aðeins 126 manns, og er hægt að fara í bil milli skólans og prestssetursins mestan hluta ársins. Það virðist því sem presturinn á Staðarhrauni megi ómögulega vera í þeim andlega menningarstraumi, sem hann yrði í við skólann, og kenna börnunum, vera meðal barnanna og rækja það starf, sem presti og kennara ber að rækja. Held ég, að þeir andlegu straumar þar gætu verið eins hollir og andlegir straumar hér í Reykjavik.

Ég hef aldrei gert mér vonir um, að ég mundi ráða þessu máli hér á Alþingi, enda hef ég litið til þess gert. Það er erfitt að ráða gangi þess, en vonandi sýna hv. þm. tillitssemi í þessu máli, þó að það sé viðkvæmt kjördæmamál. Heppilegast væri, ef hv. d. vildi hliðra til eins og hv. Ed. gerði. Nú eru prestarnir jafnmargir og þeir voru á upphaflega frv., en skipun þeirra er eitthvað breytt. Kirkjan getur alltaf tekið upp baráttu sína fyrir umferðarprestum. Við atkvgr. um þetta í Ed. munaði einu atkv., og virðist vilji fyrir því hér. En eins og ég sagði, þá getur kirkjan hvenær sem hún vill tekið upp sjálfstæða baráttu fyrir því að fá umferðarpresta, sem geta hlaupið í skörðin, þegar á liggur.

Skal ég svo ekki orðlengja þetta frekar, en vil leggja ríka áherzlu á, að ef breyting verður nú gerð á frv., er tvísýnt um, að það nái fram að ganga á Alþingi, og reyndar ekki útlit fyrir, að það nái fram að ganga. Ef þessi hv. d. gerir ekki breytingar á frv., er samt víst, að sú tilhliðrunarsemi er minni en sú, sem hv. Ed. sýndi, þegar tekið er tillit til þess, að þar var mikill vilji til að gera afar stórfelldar breytingar á frv., eins og öllum hv. þm. þessarar d. er í fersku minni og vel kunnugt um.