24.01.1952
Neðri deild: 70. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1397 í B-deild Alþingistíðinda. (2328)
109. mál, skipun prestakalla
Páll Þorsteinsson:
Herra forseti. Það voru mörg sjónarmið, sem lágu að baki frv. um skipun prestakalla. Er eitt það, að í fáeinum prestaköllum sé starfssvið prestanna svo lítið, að þeim bjóðist þar ekki nægilegt verkefni. Eru þær ályktanir, sem dregnar eru út frá þessu, sín á hvern veg. Í fyrra var sú ályktun dregin, að fækka mætti um 10 presta á landinu. Var þá miðað við að ná sparnaði á a-lið 14. gr. fjárlaganna, og að baki lá líka áætlun um uppbyggingu prestssetra og ræktun þar. Nú er sú ályktun dregin, að ekki megi fækka prestum, heldur beri að fela sumum þeirra aukastörf, sem verði skyldustörf jafnframt prestsstörfunum. Með þessari ráðstöfun á að ná sparnaði á b-lið 14. gr. fjárlaganna, sem er um kennslumál. Er ekki nein áætlun um byggingar á prestssetrum eða gjöld, sem falla til á 20. gr. fjárl. Er ekki óeðlilegt, þó að farið sé inn á þá braut að ná sparnaði í kennslumálunum, því að kostnaður þar er meiri en við kirkjumálin.
En þær till. í frv., sem eru um kennslupresta, eru að mínum dómi þannig vaxnar, að þær þurfi endurskoðunar með. Finnst mér þær ná í sumum greinum of skammt. Er ekki tekið tillit til þess, að presturinn geti annazt kennslu á unglingastigi, ef hann kýs fremur að kenna á því stigi en í barnaskóla. Enn fremur er ekki tekið tillit til þess í frv., að presturinn getur tekið að sér stundakennslu við barnaskóla, þó að ekki sé það full kennsla. Í öðru lagi finnst mér gæta nokkurs ósamræmis í ákvæðunum um kennslupresta. Tel ég þetta ósamræmi sízt minnka við þær breytingar, sem hefur átt að gera við meðferð málsins hér. Eins og fram hefur komið, þá hefur Ed. ákveðið að taka upp tvö ný kennsluprestssetur, Staðarhraun og Tjörn. Á Tjörn mun svo háttað, að sóknirnar og skólahverfið falla ekki saman, en ná yfir hluta úr tveimur hreppum. Ég tel því mikil vandkvæði á því, að hægt verði að framkvæma þetta þar. Á Staðarhrauni er þannig háttað, að grundvöllurinn er lagður að því, að skóli rísi fyrir alla Mýrasýslu. Þar eiga að koma tveir kennarar. Hefur skólinn verið staðsettur rétt hjá Stafholti. Presturinn þar á þó ekki að annast kennslu við skólann, heldur prestur úr allt öðru prestakalli. Þetta er líkt því, ef ákveðið væri, að presturinn að Stóra-Núpi væri kennsluprestur og kenndi við skólann í Hveragerði. — Virðast mér þessar till. þannig, að frv. hafi sízt breytzt til betri vegar við meðferð málsins hér á þingi. En ég lít þannig á, að þessi skipan öll þurfi endurskoðunar við, og með tilliti til þess marka ég mína afstöðu í þessu efni og sætti mig við, að frv. verði lögfest eins og það er nú, og mun ég því greiða atkv. gegn brtt. hv. þm. Mýr.