10.12.1951
Neðri deild: 39. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 3 í C-deild Alþingistíðinda. (2336)
12. mál, sala og útflutningur á vörum
Frsm. minni hl. (Einar Olgeirsson):
Herra forseti. Ég hef nú áður gert grein fyrir þessu máli, bæði við framsöguna og eins á síðasta þingi, og ég held, að ég þurfi ekki að bæta þar neinu við nú. Sem frsm. minni hl. vil ég eindregið mælast til þess, að þetta frv. sé samþ. Vil ég benda á, að það er að öllu leyti í samræmi við stefnu hæstv. ríkisstj. um að leyfa frjálsari innflutning og útflutning á vörum. Vil ég svo vænta þess, að hv. þm. sjái sér fært að verða með þeirri breytingu, sem ég hef lagt hér til.