22.10.1951
Efri deild: 18. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í C-deild Alþingistíðinda. (2346)
70. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að eyða orðum um það grundvallaratriði, hvort afla eigi ríkinu tekna með beinum eða að öllu leyti óbeinum sköttum. Það bil, sem er á skoðunum okkar á því máli, hef ég enga von um að geta brúað. Ég er ekki viss um, að þau áhrif, sem hv. þm. telur beinu skattana hafa haft á atvinnulífið og atvinnurekstur einstaklinganna, séu á rökum byggð, og að hann dragist þannig úr höndum einstaklinga til bæjar- og sveitarfélaganna. Það álít ég stafa af því, að menn séu að sannfærast um, að það, að atvinnureksturinn færist á hendur bæjar- og sveitarfélaga, sé hið rétta fyrirkomulag. Greinilegasta sönnunin fyrir þessu er, að jafnvel stærstu andstæðingar þessa fyrirkomulags hafa tekið það upp. Reykjavíkurbær, sem stjórnað er af íhaldinu, rekur stærstu togaraútgerð, sem rekin er á landinu, útgerð, sem á 8 togara. Þetta tel ég alls ekki standa í sambandi við það skattaform að taka 40 milljónir af skattþegnunum í beinum sköttum, heldur af því að menn hafi gert upp milli yfirburða þessa fyrirkomulags. Það er ekkert vit í því, að þegar gróði er að fyrirtækjum, hafi einstaklingar stórgróða af þeim, en þegar töpin eru svo gífurleg, að enginn einstaklingur getur staðið undir þeim, lendi þau á ríkinu. Það er því ekkert vit í, að einstaklingarnir fáist við rekstur stóriðju. Auk þess hefur þetta fyrirkomulag ýmsa yfirburði þjóðhagslega séð. Tökum t. d. saltfisksveiðarnar við Grænland. Frá sjónarmiði einstaklingsins er vafamál, hvort borgar sig betur að leggja aflann upp hér eða sigla með hann til Esbjerg. Frá þjóðhagslegu sjónarmiði er mikill ávinningur að því, að aflinn sé lagður hér upp. Ef fiskurinn er lagður hér upp, verður sú vinna, er af því leiðir við uppskipun og pökkun á fiskinum, þjóðinni til hagsbóta. Ef togararnir væru nú ríkisreknir, yrði ekki siglt með fiskinn 4 sólarhringa siglingu fram hjá Íslandi til Danmerkur, 4 sólarhringa siglingu til baka og 7 dögum eytt í að losa. Er þannig eytt 15 sólarhringum frá veiðum, af því að einstaklingunum er hagstæðara að selja þar en hér. Það kostar þjóðina, að það eru ekki íslenzkar hendur, sem við þetta vinna. Auk þess eru togararnir teknir frá veiðum 10–13 sólarhringa í hverri veiðiför við að sigla með aflann til Danmerkur fram hjá atvinnulausum íslenzkum höndum. Þetta dæmi sýnir, hve stórkostlega yfirburði þjóðnýttur rekstur hefur fram yfir einstaklingsreksturinn. — Ætla ég svo ekki að fara lengra út í þetta. Hins vegar ætla ég að víkja að einu atriði í ræðu hv. þm. Hann fullyrti, að hægt yrði að leggja niður embætti skattstjórans í Reykjavík og allar skattanefndir á landinu. Ég held, að honum missýnist mjög í því. Ég held, að það sé ekki hægt, á meðan sveitarfélögin enn halda áfram að afla sér tekna í formi beinna skatta. Þá fullyrti hann, að hægt yrði að fækka starfsfólki hjá sýslumönnunum. Það hagar nú svo til, að hjá sýslumönnunum eru yfirleitt aðeins 1–2 starfsmenn og þeir yrðu 1–2 áfram, þó að innheimtu skattanna væri létt af þeim. Meira að segja hjá bæjarfógetaembættum yrði starfsfólk óbreytt. Það yrði því ekki til stórfellds sparnaðar í rekstrarkerfi ríkisins, þótt hætt væri innheimtu beinna skatta. Sú ástæða er því fallin. En til þess að trygging væri fyrir því, að hægt væri að lækka öll laun í landinu, sem mér finnst ekki óeðlilegt í samræmi við skattarýmkunina, finnst mér að þyrfti að fylgja þessu frv. till. um endurskoðun launalaganna. En um það er ekki stafur í frv. og heldur ekki í grg., að ég held.